Í Háskóla Íslands hljóta nemendur framúrskarandi háskólamenntun og öðlast víðtæka þjálfun í gagnrýnni hugsun og sjálfstæðum vinnubrögðum. Kennarar Háskólans geta sér gott orð á alþjóðavettvangi fyrir öflugt vísinda- og fræðastarf og Háskólinn á samstarf um rannsóknir og kennslu við háskóla og háskóladeildir í fremstu röð í heiminum.
Við Lagadeild Háskóla Íslands er laust er til umsóknar starf lektors á sviði eignaréttar. Nánari ákvörðun um kennslu- og rannsóknasvið lektorsins á því sviði verður tekin við ráðningu í starfið.
Umsækjendur skulu hafa lokið fullnaðarprófi í lögfræði með kandídats- eða meistaraprófi frá íslenskum háskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum háskóla og hafa sannað hæfni sína til sjálfstæðra rannsókna á sviði lögfræði. Auk þess er krafist góðrar samstarfshæfni og lipurðar í mannlegum samskiptum.
Ráðið verður í starfið til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Lagadeildar. Stefnt er að því viðkomandi hefji störf eigi síðar en 1. júlí 2012.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Vakin er athygli á ákvæði í verklagsreglum HÍ um framgang akademískra starfsmanna strax í kjölfar nýráðningar en þar er kveðið á um að forseti fræðasviðs geti þegar sérstaklega stendur á óskað eftir að akademískur starfsmaður fái framgang í annað starfsheiti en auglýst var strax í kjölfar nýráðningar.
Umsóknir skulu berast á rafrænu formi á netfangið bmz@hi.is. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið og greinargerð um áform ef til ráðningar kemur. Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á. Umsókn og umsóknargögn sem ekki er skilað rafrænt skal skila í tvíriti til vísindasviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík. Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra.
Umsóknarfrestur er til 1. mars 2012. Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Róbert R. Spanó, forseti lagadeildar í síma 525-4329, netfang: robertrs@hi.is.
Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlum skólans.
