Kesara Anamthawat-Jónsson

Kesara Anamthawat-Jónsson (f. 18.11.1951), dósent við raunvísindadeild

Kesara Anamthawat-Jónsson hefur verið dósent við líffræðiskor raunvísindadeildar Háskóla Íslands frá árinu 1996. Hún lauk BS-námi frá Chulalongkornháskóla í Thailandi árið 1973 og stundaði síðan framhaldsnám við Kansasháskóla í Bandaríkjunum. Hún lauk meistaraprófi frá Kansasháskóla árið 1979 og stundaði síðan nám við Cambridgeháskóla í Bretlandi og lauk þaðan doktorsprófi árið 1992.
Til Háskóla Íslands kom Kesara frá Rannsóknastofnun landbúnaðarins, þar sem hún starfaði sem sérfræðingur á árunum 1982-1988 og 1992-1996. Við líffræðiskor hefur hún byggt upp rannsóknaaðstöðu og sett saman rannsóknahóp ungra vísindamanna á sviði plöntuerfðafræði. Jafnframt hefur hún notað þá tækni sem sameindaerfðafræðin býr yfir við rannsóknir á erfðafræði krabbameina.

Af þessu má sjá að Kesara Anamthawat-Jónsson hefur unnið á breiðu fræðasviði, sem nær frá genarannsóknum krabbameinsfrumna til tegundablöndunar birkis. Vísindalegt gildi verkefna hennar er ótvírætt. Þau taka m.a. til tegundablöndunar plöntutegunda með mismunandi fjölda litninga, en fá dæmi um slíkt eru til. Þróun nýrrar korntegundar, melhveitis, með tegundablöndun hveitis og melgresis er dæmi um verkefni sem jafnframt hefur mikið hagnýtt gildi fyrir íslenskan landbúnað.
Frammistaða Kesöru við birtingu niðurstaðna er einnig með því besta sem þekkist innan raunvísindadeildar, eða 19 ritrýndar vísindagreinar á árunum 1995-1998, auk tveggja bókarkafla, tveggja ráðstefnugreina og fjögurra greina í íslenskum fræðiritum.

Kesara Anamthawat-Jónsson hlýtur hér með viðurkenningu Háskóla Íslands fyrir lofsvert framlag til rannsókna við Háskólann.