Leiðbeiningar fyrir Question Writer (10.12.2009)
Kennslumiðstöð hefur tekið saman leiðbeiningar fyrir Question Writer forritið sem notað er til að búa til rafræn próf í netinu. Question Writer leiðbeiningar (pdf)
Nýr upplýsingavefur Kennslumiðstöðvar (09.06.2009)
Nú á dögunum var nýr upplýsingavefur Kennslumiðstöðvar um kennslu og kennslumál opnaður á slóðinni www.kemst.hi.is.
Helsta markmið vefsins er að safna saman á einn stað upplýsingum fyrir kennara um kennsluhætti á háskólastigi, t.d. um skipulag kennslu, námsmat og fjölbreyttar kennsluaðferðir. Á vefnum má einnig finna upptökur af fyrirlestrum á vegum Kennslumiðstöðvar og upplýsingar um fjölbreytta þjónustu miðstöðvarinnar, t.d. um fjarkennslu, fjarfundi, fjölvalspróf og upptökur.
Upplýsingavefurinn er og mun verða í stöðugri þróun og er ætlunin að bæta efni við vefinn reglulega. Kennarar sem eiga til efni sem þeir telja að eigi heima á vefnum eða hafa áhuga á að skrifa um kennslumál eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við starfsfólk Kennslumiðstöðvar (netfang: kemst@hi.is)
Kynning á kennslukönnun - upptaka (03.04.2009)
Við lok haustannar 2008 var opnað fyrir kennslukönnun sem var af nýrri gerð, bæði uppbygging og framsetning niðurstaðna. Helsta breytingin var að niðurstöður raðast nú í sjö meginþætti, sem standa saman af nokkrum spurningum hver.
Einar Guðmundsson og Sigurður J. Grétarsson, höfundar könnunarinnar og prófessorar við sálfræðideild, héldu erindi um kennslukönnina 26. mars og 2. apríl þar sem þeir ræddu m.a. um þær breytingar sem orðið hafa á fyrirlögn kennslukönnunar og hvaða hugmyndir liggja að baki henni.
Erindi um kennslukönnun - upptaka (wmv skrá)
Erindi um kennslukönnun - skyggnur (pdf)
Gerð hæfniviðmiða - leiðbeiningar (25.03.2009)
Dr. Guðrún Geirsdóttir lektor í kennslufræði hefur tekið saman leiðbeiningar fyrir háskólakennara um gerð hæfniviðmiða, en hæfniviðmið og setning þeirra er hluti af Bolognaferlinu.
Leiðbeiningar um gerð hæfniviðmiða
Guidelines to writing Learning outcome
Fyrirlestur um fyrirlestra - Viðtal við Ingvar Sigurgeirsson - upptaka (23.03.2009)
Dr. Ingvar Sigurgeirsson hélt fyrirlestur um fyrirlestra á vegum Kennslumiðstöðvar í lok febrúar. Að því tilefni tók Hanna G. Sigurðardóttir, dagskrágerðarkona hjá Ríkisútvarpinu, viðtal við Ingvar fyrir þáttinn Vítt og breitt.
Fyrirlestur um fyrirlestra - viðtal (mp3 skrá)
Upptakan er birt með leyfi RÚV.
Málþing um fjarkennslu og fjarnám - upptökur (12.03.2009)
Föstudaginn 6. mars 2009 hélt Kennslumiðstöð málþing um fjarkennslu og fjarnám í Öskju. Á málþinginu var m.a. farið yfir sögu og þróun fjarkennslu við HÍ, stöðu fjarkennslu hjá fræðasviðum skólans og samstarf HÍ við fræðslumiðstöðvar á landsbyggðinni.
Setning - Þróun fjarkennslu við HÍ (wmv skrá)
Mótun stefnu í fjarkennslumálum hins sameinaða háskóla (wmv skrá)
Staða fjarkennslu og framtíðarsýn: Félagsvísindasvið (wmv skrá)
Staða fjarkennslu og framtíðarsýn: Heilbrigðisvísindasvið (wmv skrá)
Staða fjarkennslu og framtíðarsýn: Hugvísindasvið (wmv skrá)
Staða fjarkennslu og framtíðarsýn: Menntavísindasvið (wmv skrá)
Samstarf HÍ og fræðslumiðstöðva (wmv skrá)
Þróun fjarkennslu við HÍ (ppt)
Skýrsla verkefnahóps um fjarnám við Háskóla Íslands (pdf)
Alyson Bailes: Verkfærasett háskólakennarans - upptaka (04.03.2009)
Þann 3. mars 2009 hélt Alyson Bailes, aðjúnkt við Stjórnmálafræðideild, erindi á vegum Kennslumiðstöðvar um það sem hún kallar „Teaching Tool-kit“.
Á síðustu önn hóf Stjórnmálafræðideild umræðu um hvernig kennslu væri best háttað við Háskóla Íslands með það að markmiði að auka gæði kennslunnar. Eftir nokkra eftirgrennslan tók Bailes saman „verkfærasett“ af góðum kennsluaðferðum og ráðum. Á fyrirlestrinum kynnir Bailes verkfærasettið og möguleikana sem það býður kennurum til þess að auka kennslureynslu sína í þremur þáttum: Undirbúningi, framsetningu og námsmati.
Upptaka - Alyson Bailes (wmv skrá)
Anna Jones: Að færa gagnrýna hugsun aftur til fræðigreinanna - upptaka (21.11.2008)
Um áhrif fræðagreina á gagnrýna hugsun
Föstudaginn 14. nóvember hélt Dr. Anna Jones frá Melbourne háskólanum í Sidney erindi á vegum Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands.
Gagnrýnin hugsun er einn meginhornsteinn háskóla og yfirlýst markmið háskólanáms. Í fræðilegri og menntapólitískri umræðu (s.s. við setningu viðmiða vegna Bolognainnleiðingar) er gagnrýnin hugsun oft slitin úr samhengi við þá fræðigrein sem kenna á hugsunina og litið svo á að gagnrýnin hugsun eigi sér tilvist óháða greinum. Rannsóknir fræðimanna á háskólanámi og kennslu undirstrika hins vegar mikilvægi fræðigreina og að nám og kennsla verði að taka mið af sérstöðu þeirra.
Í erindinu fjallaði doktor Anna Jones um sýn háskólakennara á gagnrýna hugsun innan fræðigreina og hvernig sú sýn er mótuð af þekkingarfræðilegum og faglegum háttum greinarinnar. Kennararnir sem þátt tóku úr rannsókninni komu úr tveimur rannsóknarháskólum í Ástralíu og fimm fræðigreinum þ.e. sagnfræði, eðlisfræði, hagfræði,lögfræði og læknisfræði. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að gagnrýna hugsun verður að skoða í ljósi fræðigreina.
Upptaka - Anna Jones (wmv skrá)
Fyrirlestur um fyrirlestra - upptaka (14.03.2008)
Þann 26. febrúar hélt dr. Ingvar Sigurgeirsson fyrirlestur um fyrirlestra á vegum Kennslumiðstöðvar. Fyrirlesturinn var tekinn upp og er hann aðgengilegur hér:
Fyrirlestur um fyrirlestra - fyrri hluti
Fyrirlestur um fyrirlestra - seinni hluti
(skoða þarf skrárnar í Windows Explorer)
Fyrirlesarinn, dr. Ingvar Sigurgeirsson, er prófessor við menntavísindasvið HÍ og hefur fengist við rannsóknir á kennsluaðferðum ásamt því að skrifa handbækur fyrir kennara um kennslufræði.
MindManager - hugkort (20.02.2008)
Háskóli Íslands, Mindjet og Verkefnalausnir hafa gert með sér samning um ókeypis aðgang nemenda og starfsfólks að hugbúnaðinum MindManager, bæði fyrir PC og Mac. Hugbúnaðurinn byggir á hugmyndum um hugkort en hugkort eru myndræn framsetning á hugmyndum og verkþáttum. Hugbúnaðurinn nýtist vel í skólastarfi bæði fyrir nemendur og kennara og auðveldar þeim að skipuleggja og hafa yfirsýn yfir þau verkefni sem unnið er að hverju sinni. Í kennslustofunni nýtist MindManager annars vegar fyrir kennara til að miðla upplýsingum og hins vegar fyrir nemendur til að taka glósur, skipuleggja, ljúka og kynna verkefni.
Nálgast má MindManager af Uglunni, sjá upplýsingar á vefsíðu Reiknistofnunar Háskóla Íslands. Verkefnalausnir standa fyrir námskeiðum á MindManager í samvinnu við Kennslumiðstöð, starfsmannasvið HÍ og Menntasmiðju á menntavísindasviði. Jafnframt er hægt að fá aðstoð við notkun hugbúnaðarins hjá notendaþjónustu RHÍ í síma 525 4222 eða á netfangi help@hi.is.
eMission: Nýtt upptökuforrit (31.08.2007)
Tekið hefur verið í notkun upptökuforritið eMission. Stefnt er að því að setja forritið upp á flestar tölvur Háskólans.
Hér geturðu sótt leiðbeiningar á eMission í pdf-formi.
Snertiskjár í flestar stærri stofur: Frábært kennslutæki (31.08.2007)
Snertiskjár (Sympodium ID350)
Á haustmisseri 2007 voru flestar af stærri stofum Háskóla Íslands búnar snertiskjá. Snertiskjárinn er tengdur við tölvu líkt og venjulegur skjár en býður upp á ýmsa gagnvirka möguleika á flutningi kennsluefnis. Hægt er t.d. að teikna á skjáinn, ofan á sýnt efni, jafnt PowerPoint kynningar, myndskeið, skjámyndir eða í raun allt það sem mögulegt er að sýna í tölvunni. Hægt er að nota skjáinn í stað töflu þar sem hægt er að skrifa beint á hann og vinna jöfnum höndum með handskrift og vélritaðan texta. Með búnaðinum fylgir hugbúnaður sem býður upp á ýmsa skemmtilega möguleika við þessa töflusýslan. Búnaðurinn er afar einfaldur og þægilegur í notkun. Hér fyrir neðan eru vísanir í síður með leiðbeiningum fyrir skjáinn ásamt kennsluefni.
Stutt lýsing á skjánum og helstu aðgerðum
Tölvunám.is - ókeypis tölvunám fyrir alla í HÍ (26.03.2007)
Frá og með 15. janúar hefur starfsfólki og stúdentum Háskólans gefist tækifæri á að nýta sér gagnvirka kennsluvefinn Tölvunám.is.
Á Kennsluvefnum er kennsla á öll helstu forrit Office vöndulsins s.s. Word, Excel, PowerPoint, FrontPage, Outlook, Access auk Lotus Notes og Photoshop. Starfsfólk og stúdentar HÍ hafa aðgang að Tölvunám.is í gegnum allar tölvur á háskólasvæðinu auk þess sem aðgangur er einnig opinn heimilum með ADSL eða VPN tengingu frá RHÍ. Sjá hér leiðbeiningar um ADSL og VPN tengingar.
Það er engin þörf á að slá inn aðgangsorð, heldur er aðgangur frír fyrir alla sem tengdir eru Háskólanetinu. Aðeins þarf að opna vafra, slá inn slóðina www.tolvunam.is og þá er hægt að velja kennslu í því forriti sem þörf er á. Þessi námskeið henta líka afskaplega vel til uppflettingar, því námskeiðunum er skipt í kafla sem hægt er að smella sig beint inn í. Það er um að gera að nýta sér þennan frábæra möguleika til sjálfsnáms.
Stuttmyndin: Teaching Teaching and Understanding Understanding (06.02.2007)
Hvernig læra nemendur? Hvernig geta kennarar stuðlað að skilningi nemenda? Kennslumiðstöð hvetur kennara og stúdenta til að gefa sér 19 mínútur til að horfa á stuttmyndina: Teaching Teaching and Understanding Understanding. Myndin lýsir vel hvernig nemendur læra og hvaða leið kennarar þurfa að fara í kennslu til að stuðla að skilningi nemenda sinna. Myndin er eftir prófessor við Háskólann í Árósum og er byggð á bók kennslu- og sálfræðingsins John Biggs: Teaching for Quality Learning at University. Stuttmyndin er til á DVD formi en einnig er hægt að nálgast hana með því að smella hér.
