Kennsluáætlun hvers námskeiðs fyrir sig birtist í Uglunni. Á kennsluáætlun er einnig oftast að finna þær bækur og greinar sem liggja til grundvallar námsefni námskeiðisins. Í kennsluáætlun kemur einnig yfirleitt fram hvernig námsmati námskeiðisins er háttað, þ.e. hvort það eru próf, verkefni, hvort það er mætingarskylda í áfangann o.s.frv.
Bókalista er einnig hægt að finna á vef Bóksölu stúdenta, boksala.is.
Flestar bækur er hægt að kaupa í Bóksölu stúdenta en einnig er skiptibókamarkaður á Uglunni og á studentamidlun.is þar sem oft má finna bækur á góðu verði. Nýlega var einnig opnaður vefurinn skiptibokamarkadur.is, þar sem seldar eru notaðar bækur. Einnig eru örfáar deildir og nemendafélög sem reka bóksölu fyrir sína nemendur.
