Jórunn Erla Eyfjörð (f. 25. 5. 1946), prófessor við læknadeild.
Jórunn Erla Eyfjörð innritaðist til náms í líffræði við Háskóla Íslands 1968 og lauk þaðan B.Sc. prófi árið 1971. Strax á þessum fyrstu námsárum mótaðist áhugi Jórunnar á því viðfangsefni sem hefur verið rauði þráðurinn í rannsóknum hennar allar götur síðan, þ.e. erfðaefninu, skemmdum á því og aðferðum frumunnar til að gera við slíkar skemmdir. Að loknu grunnnámi hélt Jórunn til framhaldsnáms við háskólann í Sussex í Englandi og lauk þaðan doktorsprófi árið 1976.
Jórunn hefur verið háskólakennari um langt árabil, fyrst við háskólann í Sussex og síðar við raunvísindadeild og læknadeild Háskóla Íslands. Hún varð lektor við raunvísindadeild 1982, dósent við læknadeild 1988 og prófessor við sömu deild árið 2005. Jórunn hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa og hlotið viðurkenningar fyrir vísindastörf sín bæði hér á landi og erlendis.
Fyrir rúmlega tuttugu árum hóf Jórunn að taka þátt í uppbyggingu rannsóknastofu Krabbameinsfélags Íslands í sameinda- og frumulíffræði (nú rannsóknastofa Háskóla Íslands og Krabbameinsfélags Íslands í sameinda- og frumulíffræði). Rannsóknastofan hefur verið leiðandi á Íslandi í krabbameinsrannsóknum og er vel þekkt á alþjóðlegum vettvangi sem er að stórum hluta framlagi Jórunnar að þakka. Jórunn og samstarfsfólk hennar átti drjúgan þátt í að finna annað af tveimur þekktum áhættugenum fyrir brjóstakrabbamein og hafa niðurstöður rannsókna þeirra vakið heimsathygli. Þetta gen, sem nefnist BRCA2, hefur reynst skýra meiri hluta ættlægra brjóstakrabbameina á Íslandi. Einnig hefur komið í ljós að það skiptir máli fyrir krabbamein í blöðruhálskirtli, bæði hvað varðar áhættu á að fá sjúkdóminn og lífshorfur sjúklinga.
Jórunn Erla er afar öflugur vísindamaður og í fararbroddi á sínu fræðasviði hérlendis sem erlendis. Hún hefur birt fjölda fræðigreina, margar þeirra í virtustu alþjóðlegu tímaritum. Hún hefur verið mjög virk í alþjóðlegu samstarfi og aflað stórra erlendra vísindastyrkja í harðri samkeppni. Síðast en ekki síst hefur hún verið farsæll leiðbeinandi fjölda nemenda í meistara- og doktorsnámi og var meðal brautryðjenda á því sviði við Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands vill með þessari viðurkenningu þakka Jórunni Erlu Eyfjörð fyrir lofsvert framlag hennar til vísinda við skólann.
