Jóna Freysdóttir

Jóna Freysdóttir var ráðin í 50% starf dósents í ónæmisfræði á fræðasviði ónæmisfræði við læknadeild  Heilbrigðisvísindasviðs frá 1. nóvember 2010.

Jóna lauk BS prófi í meinatækni frá Tækniskóla Íslands 1985, fjórða árs prófi í ónæmisfræði frá Líffræðiskor HÍ árið 1988 og doktorsprófi í ónæmisfræði frá Háskólanum í London (Royal Postgraduate Medical School, Hammersmith Hospital) árið 1996.

Að loknu doktorsprófi starfaði Jóna sem nýdoktor (post-doctoral fellow) við Guy´s sjúkrahúsið í London og síðan Háskólann í Leeds.  Jóna hefur kennt ónæmisfræði við lyfjafræðideild, líf- og umhverfisvísindadeild og læknadeild HÍ. Hún hefur gengt aðjúnktsstarfi við  lyfjafræðideild frá 2006 og fékk nafnbótina klínískur prófessor við læknadeild HÍ frá 2009.

Jóna hefur aðsetur á Rannsóknastofa í gigtsjúkdómum og Ónæmisfræðideild LSH við Hringbraut. Sími hjá henni er 543-6852 og netfang jf@hi.is

Háskóli Íslands býður Jónu velkomna til starfa.