Jóhanna María Vilhelmsdóttir var ráðin verkefnastjóri á Hugvísindasviði frá 1. nóvember 2009.
Jóhanna María er með BA-próf í guðfræði með spænsku sem aukagrein og hefur stundað MA-nám í trúarbragðafræðum í Tübingen í Þýskalandi og við Háskóla Íslands. Hún starfaði sem blaðamaður á Morgunblaðiu áður en hún hóf störf á Hugvísindasviði. Hún hefur jafnframt starfað við þýðingar.
Jóhanna María mun sinna verkefnum fyrir Íslensku- og menningardeild og Sagnfræði og heimspekideild.
Jóhanna María hefur aðsetur á skrifstofu Hugvísindasviðs í aðalbyggingu HÍ, sími: 525-4354, netfang: jovil@hi.is
Háskóli Íslands býður Jóhönnu Maríu velkomna til starfa.
