Vefgátt jafnréttismála: jafnretti.hi.is
Starfandi jafnréttisfulltrúi Háskóla Íslands er Dagný Ósk Aradóttir Pind. Hún er með aðsetur á 3. hæð á Háskólatorgi (HT 323).
Dagný er lögfræðingur að mennt og leysir af Arnar Gíslason, kynjafræðing sem hefur starfað sem jafnréttisfulltrúi frá árinu 2007, á meðan hann er í leyfi til áramóta 2012.
Viðtalstímar eftir samkomulagi.
Netfang: jafnretti@hi.is
Sími: 525-4095
Jafnréttisfulltrúi hefur á vegum stjórnsýslu HÍ yfirumsjón með jafnréttismálum í samvinnu við jafnréttisnefnd og ráð um málefni fatlaðs fólks, og er hann jafnframt formaður ráðsins.
Hlutverk jafnréttisfulltrúa er m.a. að vinna að stefnumótun og áætlunum sem tengjast jafnréttisáætlun, fylgja eftir jafnréttisstefnu skólans, sinna fræðslu og ráðgjöf um jafnréttismál, ásamt því að stuðla að því að jafnréttismál séu sjálfsagður þáttur í starfi Háskóla Íslands.
