Jafnréttisdagar 2011 - Dagskrá

[Jump to programme in English]

 

Jafnréttisdagar í HÍ voru haldnir í þriðja sinn dagana 13.-27. október 2011. Nánari upplýsingar og dagskrá má sjá hér að neðan.

Markmiðið með Jafnréttisdögum er að stuðla að fræðslu og aukinni umræðu og skilningi á jafnréttismálum, innan sem utan háskólasamfélagsins, og stuðla að því að gera jafnréttismál sýnilegri. Sem fyrr var ókeypis á alla viðburði Jafnréttisdaga og aðgangur öllum heimill.

Á Jafnréttisdögum stóð framandverkaflokkurinn Kviss búmm bang fyrir verkinu Svo eðlilegur náungi á Háskólatorgi, en verkinu lauk með skemmtidagskrá á lokahófi Jafnréttisdaga í Tjarnarbíói. Nánar um verkið neðst á þessari síðu.

Dagana 13-26 október fór fram sýningin Endemis óhljóð á Háskólatorgi, og var sýningarstjórn í höndum Endemis, tímarits um samtímalist íslenskra kvenna. Nánar um sýninguna og þá listamenn sem fram komu neðst á þessari síðu.

Bæði Háma og Bóksala Stúdenta tóku þátt í Jafnréttisdögum - Háma bauð upp á alþjóðlegan matseðil og Bóksalan var með tilboð á völdum bókum sem snerta jafnrétti.

 

Ná í dagskrá (flyer) á PDF formi

Ná í veggspjald á PDF formi

 

Dagskrá Jafnréttisdaga 2011 í Háskóla Íslands

 

13. október

12-13: Re-thinking gender in complex Asia: New activism among Adivasi women in India / Aktívismi meðal Adivasi-kvenna á Indlandi
Ragnhild Lund
Háskólatorg 102
Fer fram á ensku
-RIKK – Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum

This talk explores the significance of collective agency of tribal (Adivasi) women’s activist groups in Orissa, India.  Based on a pilot study in Sundergarh and Rayagada districts, it is found that the present mining-based industries have lead to forced displacement, increasing poverty and erosion of resources and rights among poor Adivasi men and women. Under the neo-liberalist regime of the state, tribal women have scaled up their resistance by allying with other activist groups. They have become more professional and strategic in their action and visibility, and hence more effective.  On the one hand such “new activism” remains insignificant particularly when their constitutional rights and status are being systematically eroded by the state and global actors. On the other hand, however, such activism has given tribal women political recognition which can no more be ignored by the ruling class in the country.

 

 

14. október

12-13: Tíminn og valdið / The power of time
Guðbjög Linda Rafnsdóttir
Hallveigarstaðir, Túngötu 14
-Námsbraut í félagsfræði & Félagsvísindasvið

Að hafa vald yfir eigin tíma er að hafa vald yfir öðrum er stundum sagt. Þá er vísað til huglægra vídda tímans ekki síður en til tíma klukkunnar.
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir prófessor í félagsfræði fjallar um íslenskar og erlendar rannsóknir sem sýna ólíka upplifun kynjanna á tímanum sem auðlind og yfirráð. Einnig fjallar hún um hvernig þessi tímaupplifun hefur áhrif á líf og líðan fólks. 

14-16: Jafnrétti, fötlun og háskólanám / Equality, disability and higher education
Eva Magnus, Knútur Birgisson, Aðalbjörg Gunnarsdóttir, Bergvin Oddsson & Jónína Kárdal
Fundarstjóri er Rannveig Traustadóttir
Aðalbygging, Hátíðarsalur
Fer fram á ensku og íslensku
-Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum & RUMFF – Ráð um málefni fatlaðs fólks

Aðalfyrirlesari málþingsins er norska fræðikonan Eva Magnus sem mun segja frá niðurstöðum doktorsrannsóknar sinnar um daglegt líf og reynslu fatlaðra háskólastúdenta í Noregi. Knútur Birgisson meistaranemi í fötlunarfræði mun greina frá fyrstu niðurstöðum rannsóknarinnar Jafnrétti til náms: Réttur og raunveruleiki fatlaðra nemenda við Háskóla Íslands. Þá munu tveir fatlaðir nemendur við HÍ segja frá reynslu sinni og í lokin greinir fulltrúi Náms og starfsráðgjafar HÍ frá fræðsluefninu Dare 2 fyrir starfsfólk HÍ um fötlun og háskólanám.

20-22: Q – kvöld: Q pub quiz um jafnrétti og hinsegin tilveru / Q – evening: Q pub quiz about equality and queer culture
Hús samtakanna '78, Laugavegi 3, 4. hæð
-Q - Félag hinsegin stúdenta
   
Næsta Q-Kvöld er tileinkað Jafnréttisdögum Háskóla Íslands. Af því tilefni mun Q-Félagið halda pub quiz um almennt jafnrétti og hinsegin tilveru. Við hvetjum alla háskólanema og meðlimi Q til að fjölmenna á þennan viðburð. Frítt inn, vinningar í boði og allir velkomnir.
Húsið opnar klukkan 20:00 og spurningakeppnin byrja 21:30 – ekki mínútu seinna!
Það verða tveir til fjórir saman í liði – ekki hafa áhyggjur þótt þið mætið ein því við sjáum til að allir fái liðsfélaga.
Sjáumst eldhress í keppnisskapi!
Q – queer by nature, fabulous by choice

 

17. október

12-13: Feðraveldið sem hrundi... og hitt sem kom í staðinn / The patriarchy that came falling down... and the one that replaced it
Þorgerður Einarsdóttir
Fundarstjóri er Arnar Gíslason
Lögberg 103
-MARK – Miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna & Félagsvísindasvið

"After the crash, Iceland's women lead the rescue" (The Observer 22/2 2009).
"Viking Women Aim to End to the Age of Testosterone" (PBS 24/4 2009).
"The Most Feminist Place in the World" (The Nation 21/2, 2011)
"Den isländska krisen blev ett genombrott för kvinnorna" (Arbetsliv i Norden 7/3, 2011).
Þetta eru nokkur dæmi um hinn opinbera sannleik að karllæg gildi hafi hrunið í
hruninu og konur tekið yfir. En hver er raunveruleikinn á bak við þessa
orðræðu? Allt um það á Jafnréttisdögum, í hádeginu 17. október.
Þorgerður Einarsdóttir er prófessor í kynjafræði við Háskóla Íslands. Hún
hefur verið umsjónarkennari kynjafræðináms frá 2001. Þorgerður hefur m.a.
skrifað um kyngervi og þegnrétt, nýfrjálshyggju og kynjatengsl í íslensku
samhengi, nú síðast í tengslum við hrunið. Þorgerður gerði, ásamt Gyðu
Margréti Pétursdóttur, greiningu á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis frá
kynjafræðilegu sjónarhorni.

18. október

10-13: Málþing um kynferðislega misnotkun í trúarlegu samhengi / Sexual abuse in a religious context
Marie M. Fortune, Sólveig Anna Bóasdóttir, Brynhildur G. Flóvenz, Sigfinnur Þorleifsson, Berglind Stefánsdóttir & Guðrún Ebba Ólafsdóttir
Fundarstjóri er Elín Hirst
Aðalbygging, Hátíðarsalur
Fer fram á ensku og íslensku
-Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ & Fagráð Þjóðkirkjunnar um meðferð kynferðisbrota

Aðalfyrirlesari málþingsins er Rev. Dr. Marie M. Fortune sem er ein virtasta fagmanneskja á sviði fræðslu- og forvarnarmála um kynferðislegt ofbeldi í Bandaríkjum Norður Ameríku. Hún er guðfræðingur, vígður prestur í The United Church of Christ, auk þess að vera stofnandi og veita forstöðu FaithTrust Institute í Seattle. Aðrir fyrirlesarar munu flytja stutt erindi um kynferðislega misnotkun barna út frá sjónarhorni fræðigreina sinna.

20-21.30: Vinna, borða, sofa? Opinn fundur um karla og jafnrétti / Eat, sleep, work? Discussion meeting on men and equality
Guðmundur Andri Thorsson, Ingólfur V. Gíslason & Kristín Ástgeirsdóttir
Fundarstjóri er Jón Yngvi Jóhannsson
Háskólatorg 101
-Starfshópur um karla og jafnrétti & Starfshópur um Jafnréttisdaga

Hvaða erindi eiga karlar í jafnréttisbaráttuna? Á fundinum verður farið yfir stöðu karla í jafnréttismálum á Íslandi og reynt að rýna í hvar og hvernig þeir geta látið til sín taka í þeim málum. Saman ætlum við að finna leiðina fram á við.

-Ingólfur V. Gíslason, karlafræðingur, fer yfir stöðuna: hvað hefur áunnist seinustu árin og hvað hafa nágrannaþjóðir okkar gert í þessum efnum?
-Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, flytur erindi og spyr m.a.: Af hverju eru íslenskir karlar ekki á kafi í vinnu við að tryggja jafnrétti kynjanna? Eru það ríkjandi karlmennskuhugmyndir sem hindra karla í að greina stöðu karla? Í erindinu verður vöngum velt yfir fjarveru karla í jafnréttisbaráttunni hér á landi og rifjað upp að meðan kvenréttindabaráttan stóð yfir áttu konur marga stuðningsmenn ekki síst í röðum skálda. Hvar eru þeir nú sem vilja byggja upp jafnréttisþjóðfélagið?
-Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur hugleiðir hvernig jafnréttismál blasa við körlum, og hann nefnir erindi sitt: Að vera jafn réttur. Karlar og jafnréttismál.

19. október

12-13: Karlmennskuhugmyndir Gillz – Græskulaust grin eða dauðans alvara? / Gillz's masculinity idea – An innocent or a harmful joke?
Ásta Jóhannsdóttir & Kristín Hjálmarsdóttir
Fundarstjóri er Guðný Guðbjörnsdóttir
Bratti, Menntavísindasviði v/Stakkahlíð
-RannKyn – Rannsóknarstofa um jafnrétti, kyngervi og menntun & Menntavísindasvið

Ásta og Kristín kynna niðurstöður orðræðugreiningar sinnar á þeirri karlmennskuhugmynd sem Egill Einarsson íþróttafræðingur heldur á lofti í bókinni 
Mannasiðir Gillz og máta niðurstöðurnar við kenningar um ríkjandi og skaðlegar karlmennskuhugmyndir. Orðræðan einkennist af því að dregið er úr kvenlegum áherslur á útlit og umhirðu líkamans með ofuráherslu á fjölda kynferðislegra sigra, stjórnun líkama og tilfinninga auk undirskipun annarra samfélagshópa, ekki síst kvenna. Þær telja að þessi karlmennskuhugmynd geti talist skaðleg og unnið gegn þróun í jafnréttisátt. Þær benda ábyrgð fjölmiðla sem hafi gagnrýnislaust gert karlmennskuhugmyndina eftirsóknarverða og lögmætt þá orðræðu sem henni fylgir.

20. október

12-13: Umræða og andóf í jafnréttisbaráttu / Discussion and dissidence in the struggle towards equality
Hilmar Magnússon & Sigríður Þorgeirsdóttir
Fundarstjóri er Þórunn Sveinbjarnardóttir
Askja N-131
-Jafnréttisnefnd Háskóla Íslands

Á málstofunni verður fjallað um þá umræðu og orðræðu sem tíðkast þegar jafnréttsmál ber á góma. Hvernig er talað um jafnréttismál, og fólk sem hefur valið sér það hlutverk að berjast fyrir jafnrétti? Og skiptir máli hvort barist er fyrir t.d. jafnrétti kynjanna eða jafnrétti hinsegin fólks? Sigríður mun fjalla um málið frá sjónarhóli fræðilegrar umræðu og umræðu um jafnrétti og vísindi, og Hilmar mun taka púlsinn á orðræðu líðandi stundar um jafnréttsmál.

20-21.30: Úr ræsinu í ríkisstjórn - Hinsegin söguganga um Reykjavík / From gutter to government - LGBT history and culture walk
Hilmar Magnússon
Gangan leggur af stað kl. 20 frá Aðalbyggingu Háskóla Íslands
ATH: Takmarkaður fjöldi, skráning með tölvupósti á hilmar.magnusson@gmail.com
-Starfshópur um Jafnréttisdaga

Gönguferð um hinsegin söguslóðir í Reykjavík með Hilmari Magnússyni. Uppgötvið hinar földu og skuggalegu hliðar Reykjavíkur fortíðarinnar. Kynnist því hvernig hörð þriggja áratuga barátta fyrir mannréttindum hefur snúið ofstæki í umburðarlyndi. Heyrið sögur af búllum fortíðarinnar og kynnist nokkrum af litríkustu karakterunum. Hittið hinsegin bóhema, menntskælinga 19. aldarinnar, amerísku hermennina, lesbísku Rauðsokkurnar, skáldin, listamennina, aðgerðasinnana og stjórnmálamennina. Sjáið hvernig hinsegin fólk hefur stigið úr ræsinu og risið til æðstu metorða í íslenskum stjórnmálum.

21. október

12.25-13.50: Kynvitund og stjórnarskráin / Gender and the Icelandic Constitution
Grímur Ólafsson & Silja Bára Ómarsdóttir
Háskólatorg 105
-Q – Félag hinsegin stúdenta

Í tilefni af Jafnréttisdögum Háskóla Íslands mun Q-Félag Hinsegin Stúdenta halda umræðufund um mikilvægi þess að orðið kynvitund sé hluti af stjórnarskrá Íslands. Fjallað verður um hvaðan orðið kynvitund kemur, hverju það breytir að hafa það í stjórnarskránni, hvað gerðist á stjórnlagaráði og hvers vegna orðið komst ekki inn.
-Grímur Ólafsson mun ræða hvað varð til þess að Q-Félagið fór í þessa baráttu
-Silja Bára Ómarsdóttir mun ræða um umfjöllun málsins innan stjórnlagaráðs
-Að erindum loknum taka við pallborðsumræður.
Talað er um kynferði í stjórnarskrá en kynferði vísar aðeins til líffræðilegs kyns á meðan kynvitund vísar til þess hvernig einstaklingar upplifa kyn sitt, óháð líffræðilegum þáttum.
Með því að bæta inn orðinu kynvitund stuðlum við að auknu jafnrétti kynjanna til frjálsrar tjáningar á sínu kynferði og setjum það í lög að ekki megi mismuna fólki byggt á kynvitund. Þetta er sérstaklega mikilvæg barátta fyrir hinsegin fólk og þá einkum trans fólk. Víða vantar upp á að réttindi trans fólks og hverra þeirra sem falla utan hinna hefðbundnu skilgreininga á kynferði séu virt og tryggð.

14-15.30: Nútímans konur / Women of modernity
Erla Hulda Halldórsdóttir
Háskólatorg 105
-RIKK – Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum

Í fyrirlestrinum kynnir Erla Hulda Halldórsdóttir sagnfræðingur helstu niðurstöður nýútkominnar doktorsritgerðar sinnar í sagnfræði, Nútímans konur. Menntun kvenna og mótun kyngervis á Íslandi 1850–1903, en þó einkum þann hluta sem snýr að stofnun og starfsemi kvennaskólanna og þeirri hatrömmu umræðu sem fram fór á síðum landsmálablaðanna um hlutverk og eðli kvenna.
Grein Páls Melsteð um menntun kvenna, sem birtist í Norðanfara árið 1870, hratt af stað snarpri umræðu um menntun og samfélagslegt hlutverk kvenna þar sem sjá má eindregna afstöðu gegn óhagnýtri og óþjóðlegri menntun kvenna, með öðrum orðum þeirri menntun sem gat leitt þeir af braut hefðbundins hlutverks móður og húsmóður.
Í meginatriðum var kvennaskólunum ætlað að endurskilgreina hlutverk kvenna í anda ríkjandi kyngervishugmynda. Á þann hátt var brugðist við nútímavæðingu, frelsiskröfum og öðrum breytingum sem taldar voru ógna heimilinu og hinu svokallaða kvenlega eðli. Reyndin var þó sú að kvennaskólarnir urðu í senn vettvangur uppbrots og samsemdar, nærandi og styrkjandi rými þar sem kyngervi kvenna og sjálfsverund var endurskilgreind í takt við nýja tíma, hvort sem var til andófs við ríkjandi gildi, og birtist í því sem kallað var ókvenlegt (og er í rannsókninni nefnt ómynd eða úrhraks-kvenleiki) eða í anda styðjandi kvenleika sem samþykkti og studdi forræði hins karllega.

20-22: Vinklar – málstofa í Nýlistasafninu / Perspectives - seminar at the Living Art Museum
Ragnhildur Jóhanns, Áslaug Einarsdóttir, Hlynur Helgason & Guðbjörg R. Jóhannesdóttir
Kristín Ómarsdóttir – Hugleiðing.
Fundarstjóri er Guðrún Erla Geirsdóttir
Nýlistasafnið, Skúlagötu 28
-Nýlistasafnið, Endemi – Tímarit um samtímalist íslenskra kvenna & Starfshópur um Jafnréttisdaga

Málstofan er samstarfsverkefni Jafnréttisdaga HÍ, tímaritsins Endemi og Nýlistasafnsins. Fjórir frummælendur verða með erindi sem öll fjalla frá mismunandi sjónarhornum um kvenlæga aðkomu að listsköpun og menningu og kanna sögulega karllæga slagsíðu í menningu á víðum grundvelli.
-Ragnhildur Jóhannsdóttir myndlistarmaður fjallar um tímaritið Endemi og móttökur þess, en Endemi var stofnað árið 2010 og er tímarit um menningu og listir sem eingöngu fjallar um listsköpun kvenna.
-Áslaug Einarsdóttir er meistaranemi í mannfræði, hún fjallar í erindi sínu um tengingu femínsima og sköpunargleði og um það sem hún kallar örugg rými þar sem hún gefur gaum að samtakamætti í skapandi starfi.
-Dr. Hlynur Helgason er myndlistamaður og heimspekingur en hann mun fjalla um kvenlæga sýn á samfélagið út frá völdum listakonum.
-Guðbjörg R. Jóhannesdóttir doktorsnemi í heimspeki vinnur um þessar mundir að grein um endurheimt fegurðar í heimspeki og listum í samvinnu við próf. Sigríði Þorgeirsdóttur heimspeking. Guðbjörg heldur erindi byggt á greininni um heimspekisöguleg tengsl fegurðar, náttúru og kvenleika.

25. október

20-22: Konur af erlendum uppruna: Atvinnumál og fólksflutningar frá femínísku sjónarhorni / Women of foreign origin: Employment issues and migration from a feminist perspective
Anna Wojtynska, Guðbjört Guðjónsdóttir & Joanna Dominiczak
Fundarstjóri er Halla Gunnarsdóttir
Friðarhúsi, Njálsgötu 87
Fer fram á íslensku og ensku
-Femínistafélag Íslands & Starfshópur um Jafnréttisdaga

Október Hitt Femínistafélags Íslands verður haldið þann 25 október, og að þessu sinni í samstarfi við starfshóp um Jafnréttisdaga í Háskóla Íslands. Umræðuefnið verður staða kvenna af erlendum uppruna á Íslandi með áherslu á atvinnumál.
Frummælendur verða Joana Dominiczak sem er formaður W.O.M.E.N (samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi),
Anna Wojtynska, doktorsnemi í Háskóla Íslands og Guðbjört Guðjónsdóttir sem gerði meistararitgerð í mannfræði um reynslu kvenna af erlendum uppruna sem vinna á hótelum á Íslandi.
Veitingar verða til sölu gegn vægu gjaldi í hússjóð Friðarhúss en engin posi er á staðnum þannig að fólk þarf að hafa með sér reiðufé.

26. október

10-10.30: Jafnréttisvitund í markaðsstarfi Háskóla Íslands / Equality in the marketing work of the University of Iceland
Jón Örn Guðbjartsson
Upplýsingaskrifstofa HÍ í Aðalbyggingu
-Starfshópur um Jafnréttisdaga

Jón Örn Guðbjartsson, sviðstjóri markaðs- og samskiptasviðs HÍ, fjallar í stuttu morgunerindi um með hvaða hætti sjónarmið um jafnrétti kynjanna eru fléttuð inn í markaðsstarf skólans, m.a. þegar kemur að útgáfu á vegum skólans. Að erindinu loknu verður boðið upp á spurningar og umræður um málefnið.

27. október

12-13: Appelsínur frá Abkhasíu: Lífið í kvennagúlaginu 1938-1943 / Oranges from Abkhazia: Life in the Women's Gulag 1938-1943
Jón Ólafsson
Háskólatorg 102
-RIKK - Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum

Nafn Veru Hertzsch, þýskrar konu sem handtekin var að Halldóri Laxness viðstöddum í Moskvu 1938, var alþekkt hér á landi eftir útkomu endurminningabókar Halldórs, Skáldatíma, árið 1963. Örlög hennar, sem Laxness lýsir að hluta í stuttum kafla í bókinni, gerðu að verkum að margir töldu jafnvel að hún hefði haft mikilvægu hlutverki að gegna. Í spjallinu verður samhengi handtöku hennar og örlaga rakið og fjallað um hópinn sem hún tilheyrði, en það voru „eiginkonur föðurlandssvikara“ sem voru handteknar þúsundum saman á árunum 1937 til 1938 og sendar til starfa á saumastofum Gúlagsins í Mordóvíu og Kazakhstan.

20-22.30: LOKAHÓF JAFNRÉTTISDAGA / FINAL EVENT

Tjarnarbíó, Tjarnargötu 12

-Starfshópur um Jafnréttisdaga 

---------------------------------------

Poppkúltur & normið - Um karlmennsku og kvenleika á líðandi stund / Pop culture and normativity - Some thoughts on contemporary masculinity and femininity

Hildur Knútsdóttir & Óttar M. Norðfjörð

Fundarstjóri er Þorgerður Einarsdóttir

-Hlé-

Svo eðlilegur náungi /  Just a regular guy

Kviss búmm bang

POPPKÚLTÚR & NORMIÐ
Hvað þykir eðlilegt og hvað ekki? Og hver hefur vald til að
ákveða það? Ímyndir tengdar karlmennsku og kvenleika eru mjög áberandi í
afþreyingariðnaðinum og „leiðbeiningar“ um það hvernig konur og karlar
„eigi“ að vera og haga sér eru áberandi á netinu, í kvikmyndum og
sjónvarpsþáttum, bókum, tímaritum og svo mætti lengi telja. Hvaða ímyndir
eru áberandi og af hverju? Hildur Knútsdóttir og Óttar Norðfjörð ætla að
rýna í þessar ímyndir, og þau skilaboð sem þær senda um „eðlilega“ karlmennsku og kvenleika, með nýstárlegum og áhugaverðum hætti. Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði, mun svo stýra umræðum að erindum loknum.

SVO EÐLILEGUR NÁUNGI
Eftir hlé mun framandverkaflokkurinninn Kviss búmm bang flytja sviðsverkið Svo eðlilegur náungi, og mun hópurinn tefla fram fulltrúum „minnihlutahópa af öllum stærðum og gerðum“ í skemmtidagskrá með hinu einstaka handbragði Kviss búmm bang:
-Ertu femínisti? Áttu barn með gleraugu? Ertu eiginmaður með litað hár? Ertu transa með bílpróf?
-Brýnt er að hólfa fólk niður og finna út hvaða hópi það tilheyrir, til þess að geta fljótt og örugglega dregið ályktanir um hvaða mann það hefur að geyma.
-Á Jafnréttisdögum mun Kviss búmm bang vinna hörðum höndum að því að koma sem flestum í sem flesta minnihlutahópa.
-Þeim mun fleiri minnihlutahópar, þeim mun meiri fjölbreytileiki.

 

----------------------------------------------

 

Svo eðlilegur náungi - verk í tveimur hlutum (á Háskólatorgi og í Tjarnarbíói)

Ertu femínisti? Áttu barn með gleraugu? Ertu eiginmaður með litað hár? Ertu transa með bílpróf? 


Brýnt er að hólfa fólk niður og finna út hvaða hópi það tilheyrir, til þess að geta fljótt og örugglega dregið ályktanir um hvaða mann það hefur að geyma.

Á Jafnréttisdögum mun Kviss búmm bang vinna hörðum höndum að því að koma sem flestum í sem flesta minnihlutahópa.

Þeim mun fleiri minnihlutahópar, þeim mun meiri fjölbreytileiki.

Flokkunin mun eiga sér stað á Háskólatorgi og standa yfir alla Jafnréttisdagana. 

Fjölbreytileikanum verður síðan fagnað á lokahófi Jafnréttisdaga með skemmtidagskrá þar sem fulltrúar minnihlutahópa af öllum stærðum og gerðum koma fram.

 

----------------------------------------------

 

Endemis óhljóð

Hljóðverkasýning á Háskólatorgi 13-26 október

Sýningarstjórn: Endemi, tímarit um samtímalist íslenskra kvenna

Í hádeginu dagana 13-26 október stendur Endemi fyrir hljóðverkasýningunni „Endemis óhljóð“ á Háskólatorgi, þeir listamenn sem þar varpa verkum sínum eru:

Sigtryggur Berg Sigmarsson

Sigurlaug Gísladóttir

Kría Brekkan

Úlfur Hansson

Ragnar Helgi Ólafsson

Kira Kira

Sindri Már Sigfússon

Ósk Vilhjálmsdóttir

Steinunn Harðardóttir

Dodda Maggý



Endemi er nýtt tímarit um samtímalist íslenskra kvenna. Tímaritið leitast við að skapa vettvang fyrir hina fjölskrúðugu myndlist nútímakvenna, auka hlut myndlistar í fjölmiðlaumfjöllun, og rýna í kynjaójafnvægi í lista- og menningarumfjöllun á Íslandi í dag. Endemi er enn fremur gallerí eða sýningarrými því hvert tölublað er hertekið af myndlistkonum og verkum þeirra. Næsta tölublað kemur út 19.nóvember við opnun sýningar í Gerðarsafni.