Íþróttahús Háskóla Íslands á Laugarvatni

Íþróttahús Háskóla Íslands á Laugarvatni

Íþróttahúsið á Laugarvatnið má kalla félagsmiðstöð svæðisins. Í hádegishléum Íþróttafræðaseturs er stundum skellt á „áskorun“ þar sem gjarnan er keppt á milli bekkja í ýmsum íþróttum. Ef til vill mest til að hreyfa sig milli bóklegu greinanna enda hreyfiþörf einstaklinga í íþróttanámi yfirleitt mikil. Nemendafélagið skipuleggur frjálsa tíma í íþróttahúsi fyrir ákveðnar íþróttir á hverju misseri stundum í samvinnu við aðra skóla og félög á staðnum.

Í Íþróttahúsinu er lyftingasalur og sundlaug sem er opin nemendum Íþróttafræðaseturs á veturna þeim að kostnaðarlausu. Einnig hafa nemendur opinn aðgang að frjálsíþróttavelli og sparkvöllum á svæðinu. Upplýsingar um afgreiðslutíma og stundatöflur er að finna á heimasíðu Íþróttafræðaseturs Háskóla Íslands á Laugarvatni.

UMFLaugdæla æfir einnig og þjálfar í íþróttahúsinu.

Starfsfólk íþróttahúss:

Sævar Ástráðsson sast@khi.is

Guðlaug Ingvarsdóttir gullai@khi.is

Hildur Magnúsdóttir hildurm@hi.is

Halldór Steinar Benjamínsson hstb@hi.is

Sími íþróttahúss, sundlaugar og valla; 486-1251 / 897-1189