Íris Björg Kristjánsdóttir

Íris Björg Kristjánsdóttir var ráðin skrifstofustjóri Norræna sakfræðiráðsins frá 1. janúar 2010. Íris lauk BA prófi 2003 og meistaraprófi 2009, í mannfræði frá Háskóla Íslands. Íris kemur úr starfi við Háskólann sem verkefnastjóri Alþjóðlega jafnréttissetursins. Með meistaranámi vann hún sem aðstoðarmaður Unnar Dísar Skaptadóttur prófessors.

Íris hefur reynslu af störfum sem tengjast mannréttindamálum um nokkurt skeið, hún vann við Alþjóðahús sem verkefnastjóri og ritstjóri 2006-2008, á Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar sem verkefnatjóri innflytjendamála september 2008-apríl 2009 og er nú formaður innflytendaráðs Félagsmálaráðuneytisins frá 2009.

Norræna sakfræðiráðið var stofnað af dómsmálaráðuneytum Norðurlandanna árið 1962. Markmið ráðsins er að stuðla að og styrkja rannsóknir á sviði afbrotafræði í aðildarlöndunum og veita ríkisstjórnum Norðurlanda upplýsingar og ráðgjöf um refsipólitísk málefni. Úthlutun styrkja til rannsókna og árlegar rannsóknarráðstefnur eru tvö af meginverkefnum ráðsins.
Höfuðstöðvar Norræna sakfræðiráðsins flytjast á milli Norðurlandanna á þriggja ára fresti. Þann 1. janúar 2010 flytur skrifstofa ráðsins frá Osló til Reykjavíkur þar sem hún verður til ársloka 2012.
Starfssvið skrifstofustjóra verður m.a. rekstur skrifstofunnar og skipulagning ráðstefna og funda, ásamt umsjón með útgáfu ráðstefnurita, skýrslna og fréttabréfi ráðsins.

Aðsetur Írisar verður í Lögbergi.