Innovit - viðskiptahugmyndir stúdenta

Innovit er sjálfstætt starfandi nýsköpunar- og frumkvöðlasetur fyrir kraftmikið og metnaðarfullt fólk með góðar viðskiptahugmyndir. Megináhersla er lögð á að styðja við háskólamenntaða frumkvöðla og sprotafyrirtæki sem verða til innan íslenskra háskóla. Í því skyni hefur Innovit gert samstarfs- og þjónustusamninga við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og viðskiptafræðideild Háskólans á Bifröst sem tryggir nemendum skólanna aðgang að þjónustu Innovit endurgjaldslaust, allt frá því að nám hefst og þar til fimm árum eftir útskrift.

Starfsemi Innovit er fjölþætt en lögð er rík áhersla á að byggja upp opinn og skapandi vettvang fyrir hugmyndaríkt og vel menntað fólk og skapa því góða og hvetjandi umgjörð til að öðlast reynslu og ná framúrskarandi árangri á sínu sviði.

Starfsemi Innovit má skipta upp í fjórar meginstoðir:

Innovit er einkahlutafélag sem rekið er í almannaþágu og rekstrarformið því sambærilegt við t.d. einkarekna háskóla. Innovit er í meirihlutaeigu þriggja hugmyndasmiða félagsins en auk þess eiga Samtök iðnaðarins og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hlut í félaginu. Frumkvöðlar að stofnun Innovit eru Andri Heiðar Kristinsson, Magnús Már Einarsson og Stefanía Sigurðurdóttir. Nánari upplýsingar um Innovit.