Ingjaldur Hannibalsson (f. 17. nóvember 1951), prófessor við viðskipta- og hagfræðideild, formaður fjármálanefndar háskólaráðs og fyrrv. framkvæmdastjóri rekstrar- og framkvæmdasviðs sameiginlegrar stjórnsýslu Háskólans
Ingjaldur Hannibalsson lauk B.Sc.-prófi í eðlisfræði og stærðfræði frá Háskóla Íslands árið 1974 og doktorsprófi í iðnaðarverkfræði við The Ohio State University í Bandaríkjunum árið 1978. Ingjaldur hefur gegnt fjölmörgum störfum, bæði innan og utan Háskólans. Hann var deildarstjóri tæknideildar Félags íslenskra iðnrekenda 1978-1983, forstjóri Iðntæknistofnunar Íslands 1983-1986, forstjóri Álafoss hf. 1986-1987 og framkvæmdastjóri Útflutningsráðs Íslands 1988-1993. Frá 1978 hefur Ingjaldur verið kennari við Háskóla Íslands, fyrst sem stundakennari, þá sem dósent í hlutastarfi 1982-1993 og frá 1997 sem prófessor við viðskipta- og hagfræðideild. Ingjaldur hefur tekið gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir hönd Háskólans. Hann var formaður viðskiptaskorar 1994-1996, formaður stjórnar Reykjavíkurapóteks 1996-1999, í fjármálanefnd háskólaráðs frá 1996 (formaður frá 1997), í stjórn Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands frá 1996 (formaður 1996-1999), í stjórn Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands 1997-2001, formaður stjórnar Tækniþróunar hf. frá 1998, í stjórn Tungumálamiðstöðvar Háskóla Íslands frá 1999 og í skipulags- og húsnæðisnefnd Háskólans 2001-2003 og er nú formaður bygginganefndar Háskólatorgs.
Í starfi sínu sem framkvæmdastjóri rekstrar- og framkvæmdasviðs hafði Ingjaldur yfirumsjón með málefnum er lúta að rekstri Háskólans og framkvæmdum á hans vegum. Var það hlutverk hans að tryggja að rekstur skólans væri skilvirkur og í samræmi við markmið hans. Eitt mikilvægasta verkefni Ingjaldar á þessum vettvangi var að hafa yfirumsjón með lokaáfanga byggingar náttúrufræðihúss Háskólans í Vatnsmýrinni. Ingjaldur hefur áunnið sér virðingu og traust starfsmanna Háskólans fyrir ósérhlífni, sanngirni og málefnalega afstöðu til þeirra verkefna sem honum hefur verið trúað fyrir.
Háskóli Íslands vill með þessari viðurkenningu þakka Ingjaldi Hannibalssyni fyrir lofsvert framlag hans til stjórnunar rekstrar og framkvæmda við skólann.
