Ingibjörg Hilmarsdóttir hefur verið ráðin í 37% starf lektors í sýklafræði við læknadeild heilbrigðisvísindasviðs frá 1. september 2009.
Ingibjörg lauk kandídatsprófi frá Læknadeild HÍ árið 1984 og nam síðan sveppa- og sníkjudýrafræði m.a. við Université Pierre et Marie Curie og Institut Pasteur í París.
Hún stundaði rannsóknir í sömu fræðum á Groupe hospitalier Pitié-Salpetriere í París 1987-1993 og klínískar rannsóknir á voriconazole hjá Pfizer Central Research í París árin 1993-1996. Ingibjörg hóf störf sem sýklafræðingur á sýklafræðideild Landspítala 1996 og innleiddi sníkjudýrarannsóknir á deildina þremur árum síðar. Þar hefur hún helgað sig gæðastýringu eftir ISO stöðlum, rannsóknum á húðsveppum, iðrasníklum, skeiðarsýkingum og sýklalyfjaónæmi, auk umsjónar með þjónusturannsóknum í sveppa- og sníkjudýrafræðum. Ingibjörg hefur sinnt ýmsum nefndar- og ritstjórnarstörfum, m.a. Verið formaður Félags íslenskra meina-fræðinga, í ritstjórn APMIS og situr nú í siðanefnd SeraCare Life Sciences í BNA.
Frá árinu 1996 hefur Ingibjörg verið stundakennari við Háskóla Íslands og Tækniskóla Íslands og stýrt rannsóknaverkefnum lækna- og lífeindafræðinema
Ingibjörg hefur aðsetur á Landspítala Háskólasjúkrahúsi.
Háskóli Íslands býður Ingibjörgu velkomna til starfa.
