Ingibjörg Ágústsdóttir

Ingibjörg Ágústsdóttir hefur verið ráðin lektor í breskum bókmenntun á 19. og 20. öld við deild erlendra tungmála, málvísinda og bókmennta við Hugvísindasvið Háskóla Íslands.

Ingibjörg er með B.A. og M.A. próf í ensku frá Háskóla Íslands og lauk doktorsprófi í skoskum bókmenntum við háskólann í Glasgow árið 2001. Doktorsverkefni hennar fjallaði um skoska rithöfundinn Robin Jenkins. Ingibjörg hefur kennt ensku við Menntaskólann á Akureyri undanfarin ár auk þess að hafa sinnt stundakennslu við Háskóla Íslands.

Ingibjörg hefur aðsetur í Nýja Garði, Ng-217 með síma 525-4190 og netfang ingibjoa@hi.is

Háskóli Íslands býður Ingibjörgu velkomna til starfa.