Ingi Rafn Ólafsson

Ingi Rafn Ólafsson var ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Verkfræði- og náttúruvísindasviðs frá 12. ágúst 2009. Ingi Rafn lauk árið 1999 B.Sc í Framleiðslustjórnun dagblaða frá Rochester Institute of Technology, Rochester NY og 2006 MBA með áherslu á alþjóðaviðskipti og alþjóðamarkaðsfræði frá University of Edinburgh, Management school.

Ingi Rafn starfaði sem viðskiptastjóri hjá auglýsingastofunni Hvíta húsinu 2006-2009, framkvæmdastjóri Prenttæknistofnunar á árunum 2001-2005. Hjá Morgunblaðinu starfaði hann 1999-2001 sem yfirmaður auglýsingaframleiðslu.

Markaðs- og kynningarstjóri hefur umsjón með kynningar- og markaðsstarfi sviðsins þ.m.t. gerð kynningarefnis, þróun vef sviðs og deilda, viðburðastjórnun á vegum sviðsins og umsjón með útgáfu bæklinga og bóka. 

Ingi Rafn hefur aðsetur í VR-2, með síma: 525-5174 og netfang: ingirafn@hi.is