Ines Thiele

Ines Thiele var ráðin í starf lektors í lífverkfræði eða lífupplýsingafræði frá 1. júní 2009. Starfið er við Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild og í samstarfi við Rannsóknasetur í kerfislíffræði.
Ines lauk doktorsprófi vor 2009 frá University of California, San Diego USA og meistaragráðu M.Sc Biotechnology, M.Sc Cellular & Molecular Biology 2004 frá Ecole Supérieure de Biotechnologie de Strasbourg í Frakklandi.

Meðfram doktorsnámi sínu var Ines var gesta sérfræðingur við Háskólann í San Diego frá 2004 til 2008 og kom þar að kennslu í kerfislíffræði. Ines hefur jafnframt kennt kerfislíffræði í stundakennslu við Háskóla Íslands 2007-2008.


Ines hefur aðstöðu á Kerfislíffræðistofu við Sturlugötu 8,  netfang:  ithiele@hi.is

Háskóli Íslands býður Ines velkomna til starfa.