Í skiptinámi

Háskóli Íslands væntir þess af skiptinemum sínum á erlendri grundu að þeir stundi námið vel og komi vel fram. Þið eru okkar helsti spegill út á við og við treystum á að þið styrkið ímynd skólans og hjálpið okkur að viðhalda þeim góðu tenglsum sem við eigum við samstarfsskóla okkar.

Hvað þarf ég að hafa í huga meðan á skiptináminu stendur?  

Það eru til dæmis mismunandi kennsluaðferðir á milli skóla og landa. Þið munuð komast að því að sumar þjóðir eru ekki mjög tæknivæddar, einhverjir skólar krefjast mun meira sjálfsnáms en þið eruð vön, aðrir byggjast að mestu á hópavinnu og enn aðrir hafa mætingarskyldu.

Skriffinnska er mjög mismunandi á milli landa og eina ráðið við henni er að vera þolinmóður og gefa sér tíma í hlutina.

Helsta ráðið er að fara út með opnum huga og muna að öðruvísi er ekki endilega slæmt.

Algengt er að námskeiðaval breytist frá því að skiptinemi fyllti út umsókn. Veljið ný námskeið í samráði við deildina ykkar og fyllið út nýja námsáætlun ef þess gerist þörf.

Hikið ekki við að hafa samband við starfsfólk Alþjóðaskrifstofu ef ykkur vantar aðstoð.