- Almennar notkunarreglur. Um notkun Hátíðasalar Háskóla Íslands í Aðalbyggingu gildir sú meginregla að hann er fyrst fremst ætlaður fyrir viðburði sem samrýmast þeirri fræða-, vísinda- og menningarstarfsemi sem fram fer innan skólans. Frávik frá þessu koma aðeins til álita ef um er að ræða viðurkennda eða opinbera aðila og viðburðurinn samrýmist eðli þeirrar starfsemi sem fram fer í Háskóla Íslands. Hátíðasalur er ekki leigður til einkaaðila eða frjálsra félagasamtaka. Í salnum fer að jafnaði ekki fram kennsla eða próf.
- Umgengni. Ganga skal hreinlega um Hátíðasal og ekki skilja eftir rusl. Óheimilt er að hengja upp veggspjöld eða myndir á veggi. Öll umgengni í salnum skal vera hávaðalaus (sjá þó 5. gr.). Á þetta sérstaklega við á prófatímum.
- Matur og drykkur. Óheimilt er að bera fram eða neyta matar og drykkjar í Hátíðasal. Ef um er að ræða móttökur í tengslum við viðburði skulu þær fara fram í holinu fyrir framan salinn. Móttökur eru ekki heimilar á prófatímum. Mælst er til þess að leigjendur útvegi ekki sjálfir veitingar. Umsjón með veitingum fyrir Hátíðasal hefur veitingasalan Háma á Háskólatorgi.
- Húsgögn og búnaður. Hátíðasalur er leigður út með 180 stólum, hljóðkerfi, skjávarpa og tölvu. Óheimilt er að breyta uppstillingu húsgagna og búnaðar í salnum, einkum að fjarlægja stóla úr honum að nokkru eða öllu leyti. Óheimilt er að flytja umfangsmikinn búnað inn í Hátíðasal nema í samráði við umsjónarmann. Undantekning frá þessu eru sérstakir viðburðir á vegum rektors, s.s. háskólaþing og starfsmannafagnaðir sem rektor býður til.
- Flygill. Á sviði Hátíðasalar er flygill sem heimilt er að nota við tónleikahald með sérstöku leyfi.
- Bókanir. Óskir um bókanir Hátíðasalar skulu vera skriflegar og sendar á netfangið kennslustofur@hi.is. Með ósk um bókun skal gefa upp eftirfarandi upplýsingar:
- Nafn, kennitölu, starfsheiti, starfsstað og símanúmer um-
sækjanda/ábyrgðarmanns. - Tilgang notkunarinnar og aðrar nauðsynlegar upplýsingar, s.s.
um fjölda gesta, tónleikahald og veitingar. - Upplýsingar um viðfangsnúmer/kennitölu í bókhaldi
Háskólans sem leigugjald skal gjaldfært á.
- Nafn, kennitölu, starfsheiti, starfsstað og símanúmer um-
Þegar ósk um bókun hefur borist Háskólanum fær umsækjandi/ ábyrgðarmaður sent með tölvupósti staðfestingu á móttöku og húsreglur Hátíðasalar. Umsækjandi staðfestir að hann hafi kynnt sér reglurnar og muni hlíta þeim. Að því búnu fær hann senda endanlega staðfestingu og er þá kominn á bindandi leigusamningur. Athugið að ávallt skal greiða leigu fyrir notkun salarins.
