Hulda Þórisdóttir var ráðin lektor í stjórnmálafræði við stjórnmálafræðiskor félagsvísindadeildar frá 1. ágúst 2009. Starfið er á sviði stjórnmálafræði með sérstakri áherslu á aðferðafræði og tölfræði.
Hulda lauk doktorsprófi frá New York University 2007 í félagslegri sálfræði með tölfræðilega sálfræði sem undirgrein, meistaraprófi frá sama skóla 2004 og B.A próf i í sálfræði frá Háskóla Íslands 1999.
Frá 2007 hefur Hulda kennt á meistarastigi við Princeton Háskóla í Bandaríkjunum, samhliða starfi nýdoktors . Hún var aðstoðarkennari við Háskóla Íslands 1997 og 1998 og kom að kennslu á fjölmörgum námskeiðum við Háskólann í New York meðan á námi hennar stóð þar. Samhliða doktorsnámi sínu sinnti Hulda ráðgjöf um hönnun rannsókna og tölfræðiúrvinnslu fyrir einstaklinga, samtök og stofnanir. Frá 1998 til 2002 var Hulda verkefnastjóri hjá IMG Gallup á Íslandi.
Sérsvið Huldu eru:
Helstu samstarfsaðilar í rannsóknum:
Hulda hefur aðsetur í Odda / O-230 sími 525 5474 og netfang : huldat@hi.is.
Háskóli Íslands býður Huldu velkomna til starfa.

- Stjórnmálasálfræði
- Hugmyndafræði, uppruni og afleiðingar
- Stjórnmálaviðhorf
- Samspil tilfinninga og stjórnmálaskoðana
- Skynjun fólks á réttlæti
Helstu samstarfsaðilar í rannsóknum:
- John Jost - New York University
- John Darley - Princeton University
- Jaime Napier - Yale University