Höskuldur Þráinsson (f. 15. 1. 1946), prófessor við íslensku- og menningardeild hugvísindasviðs Háskóla Íslands.
Höskuldur Þráinsson lauk kandídatsprófi í íslenskri málfræði frá Háskóla Íslands 1974 og doktorsprófi frá Harvard University í Bandaríkjunum 1979. Frá 1980 hefur hann verið prófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, en var í leyfi árin 1991-1995 og gegndi þá stöðu gistiprófessors við Harvard. Hann hefur verið forseti og varaforseti heimspekideildar, forstöðumaður Málvísindastofnunar og er nú stjórnarformaður Hugvísindastofnunar. Meginrannsóknarsvið Höskuldar hefur alla tíð verið íslensk setningafræði. Hann hefur skrifað greinar í ýmis virtustu málfræðitímarit heims, s.s. Linguistic Inquiry, Natural Language and Linguistic Theory og Syntax og kafla í ritrýnd safnrit auk þess að ritstýra safnritum sem gefin hafa verið út hjá mikilsmetnum erlendum forlögum. Viðamikið rit hans á ensku um íslenska setningafræði, The Syntax of Icelandic er að koma út þessa dagana hjá Cambridge University Press. Hann á langstærstan þátt í því að vekja athygli erlendra fræðimanna á íslenskri setningagerð og sérkennum hennar. Höskuldur er líka brautryðjandi í rannsóknum og kynningu á færeysku. Hann er aðalhöfundur viðamesta yfirlitsrits sem til er um færeysku, Faroese: An Overview and Reference Grammar, og hefur skrifað greinar um færeysku bæði á íslensku og erlendum málum. Höskuldur er ritstjóri og aðalhöfundur bókarinnar Setningar sem kom út árið 2005. Þar er í fyrsta skipti ritað á íslensku um mörg svið íslenskrar setningagerðar frá fræðilegu sjónarmiði. Hann hefur líka skrifað fjölda greina á íslensku um íslenska setningafræði, hljóðfræði, mállýskur o.fl. Höskuldur hefur um árabil verið ritstjóri tímaritsins Íslenskt mál. Frá því snemma á níunda áratugnum hefur Höskuldur tekið virkan þátt í norrænu samstarfi á sviði setningafræðirannsókna og er hann nú stjórnandi íslensku rannsóknarhópanna í þremur norrænum samstarfsnetum. Í tengslum við þetta samstarf hefur Höskuldur stjórnað íslenska rannsóknarverkefninu Tilbrigði í setningagerð sem hlaut öndvegisstyrk Rannís árin 2005-2007. Í þessu verkefni hafa meistara- og doktorsnemar fengið ómetanlega vísindalega þjálfun. Höskuldur hefur enn fremur verið afkastamikill við miðlun rannsóknarniðurstaðna til skólakerfisins og almennings og hann hefur samið kennslubækur og handbækur fyrir grunn-, framhalds- og háskólastig.
Háskóli Íslands vill með þessari viðurkenningu þakka Höskuldi Þráinssyni fyrir lofsvert framlag hans til vísinda við skólann.
