Hollvinir

Hollvinir

Markmið Háskóla Íslands er að byggja upp virkt samband við lykilhagsmunahópa og velunnara skólans, bæði innan lands og utan. Markviss uppbygging hollvinastarfs, og mótun og viðhald öflugra samskipta við velunnara skólans og samfélagið, er mikilvægur þáttur í að vefa sterkt tengslanet fyrir Háskólann í heild. Það sama á við um fræðasviðin fimm og allar deildir skólans.

Samfara tengslabyggingu styrkir hollvinastarfið ímynd skólans m.a. með því að breiða út fregnir af öflugri starfsemi Háskólans í samfélaginu.

Markmiðið er að starfsemi hollvinasamtaka verði afar mikilvægur liður í kynningarstarfi Háskóla Íslands til frambúðar. Tilgangur starfsins er að efla tengsl við fyrrum nemendur og samfélagið og eignast þar með öfluga talsmenn og velunnara Háskólans mjög víða í samfélaginu.

Hollvinastarf Háskóla Íslands hefur verið eflt markvisst með það í huga að treysta betur böndin við núverandi nemendur, brautskráða nemendur skólans og aðra sem vilja veg Háskólans sem mestan. Hugmyndin er að hollvinastarf Háskólans verði margþætt. Auki samhug nemenda innan skólans, nema sem útskrifast og styrki tengsl HÍ við atvinnulífið.