Hlutverk og verkefni starfsmannasviðs

Hlutverk og verkefni starfsmannasviðs

Meginhlutverk starfsmannasviðs er að vinna að vönduðum vinnubrögðum í starfsmannamálum við Háskóla Íslands og tryggja að lögum og reglum sé framfylgt í meðferð starfsmannamála.

Verkefni starfsmannasviðs tekur mið af starfsmannastefnu Háskólans. Leitast er við að gera Háskólann að góðum vinnustað þar sem gott starf er unnið af áhugasömu, samstilltu og ábyrgu fólki í anda jafnræðis. Tryggja á starfsmönnum sem best starfsskilyrði og möguleika til að vaxa og dafna í starfi.

Starfsmannasvið er eitt af sex sviðum í sameiginlegri stjórsýslu Háskólans og heyrir beint undir rektor. Á sviðinu starfa 5 starfsmenn í 4,8 stöðugildum. Þau eru, Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir sviðsstjóri og verkefnastjórarnir Anna Toher, Elísabet Þorsteinsdóttir, Hildur Halldórsdóttir og Kristín Helga Markúsdóttir sem einnig er lögfræðingur sviðsins.

Helstu verkefni sviðsins eru:

  • Starfsmannamál og útfærsla á starfsmannastefnu HÍ
  • Eftirlit og ráðgjöf vegna mála er varða réttindi og skyldur starfsmanna
  • Stoðþjónusta við stjórnendur
  • Auglýsingar og umsóknir
  • Ráðningarmál - aðstoð, þjónusta og leiðsögn við ráðningarferlið
  • Ráðningarviðtöl - þátttaka, leiðsögn og þjónusta
  • Ráðgjöf við skipulagningu og samræmingu á störfum
  • Launaröðun - starfsmanna í stjórnsýslu
  • Starfs-, hæfnis- og ársmat
  • Lögfræðileg ráðgjöf vegna starfsmannamála
  • Einstaklingsmálefni - ráðgjöf og úrræði
  • Handbók starfsmanna
  • Kjarasamningar og stofnanasamningar
  • Starfslýsingar - utanumhald, leiðbeiningar og fræðsla
  • Starfsmannasamtöl
  • Starfslokaviðtöl - stjórnsýslu störf
  • Lífeyrismál og starfslok
  • Umsjón með námsleyfum starfsmanna í stjórnsýslu
  • Umsjón með starfsfræðslu, starfsþróun og starfsþjálfun
  • Fræðsla og þjónusta við erlenda starfsmenn
  • Fræðsla og þjónusta við fyrrum starfsmenn Háskólans
  • Starfsmannaskrá og þjónusta sem henni viðkemur
  • Fjöldatölur og tölfræðilegar samantektir vegna starfsmanna

Starfsmannasvið leggur áherslu á eitt af grunngildum Háskóla Íslands um heilindi og virðingu.

Í öllu starfi Háskóla Íslands er áhersla lögð á heiðarleg vinnubrögð. Samskipti einkennast af gagnkvæmri virðingu og trausti.