Háskóli Íslands gegnir víðtæku hlutverki sem vísindaleg rannsókna- og fræðslustofnun víða um land. Aðalverkefni hans er að veita nemendum sínum menntun til að sinna sjálfstætt vísindalegum verkefnum og gegna ýmsum störfum í þjóðfélaginu. Háskólinn sinnir einnig endurmenntun þeirra sem lokið hafa háskólaprófi, miðlar fræðslu til almennings og veitir bæði öðrum stofnunum og atvinnulífi þjónustu í krafti þekkingar sinnar. Skólinn tekur einnig þátt í alþjóðlegu vísindasamstarfi með erlendum háskólum og rannsóknastofnunum.
Háskóli Íslands vinnur nú samkvæmt stefnu fyrir árin 2011-2016 (.pdf), þar sem áhersla er á að efla gæði og styrkja innviði allra þátta háskólastarfsins. Helstu stef stefnunnar eru áhersla á gæðarannsóknir og alþjóðlegt samstarf, þróttmikið framhaldsnám sem uppfyllir alþjóðlegar gæðakröfur, samþættingu kennslu og rannsókna á öllum námsstigum, eflingu mannauðs og starfsánægju stúdenta og starfsmanna og samfélagslega og hnattræna ábyrgð á 21. öld.
