Sviðsstjóri markaðs- og samskiptasviðs er Jón Örn Guðbjartsson.
Kynningarmál eru í höndum hans og Guðrúnar J. Bachmann, kynningarstjóra HÍ. Þau eru jafnframt ritstjórar Tímarits Háskóla Íslands. Guðrún J. Bachmann er ennfremur skólastjóri Háskóla unga fólksins sem starfræktur er á vori hverju.
Helga Brá Árnadóttir er verkefnisstjóri styrktarsjóða og hollvina Háskóla Íslands.
Verkefnisstjóri viðburða var Dagný Ósk Aradóttir.
Ásthildur Sturludóttir vinnur að verkefnum sem tengjast aldarafmæli Háskóla Íslands árið 2011.
Díana Dögg Víglundsdóttir, er vefritstjóri Háskólans en Droplaug Margrét Jónsdóttir sér um innri vef.
Upplýsingaskrifstofa Háskólans heyrir undir sviðið. Deildarstjóri Upplýsingaskrifstofu er Ása Kolka og þar störfuðu einnig Guðrún Pétursdóttir, Anna Vigdís Ólafsdóttir og Guðbjörg S. Haraldsdóttir.
Helstu verkefni markaðs- og samskiptasviðs eru:
- Mótun og samhæfing markaðs-, ímyndar- og kynningarmála Háskólans í samvinnu við markaðs- og kynningarráð HÍ og eftirfylgni við stefnu í þeim málaflokki.
- Smíði reglna um fagleg innri og ytri samskipti Háskólans.
- Útgáfa markaðsefnis og fréttatengds efnis í nafni Háskóla Íslands.
- Yfirstjórn ytri vefs og mörkun vefstefnu í samvinnu við vefstjórnarráð HÍ og eftirfylgni með að henni sé framfylgt innan allra eininga skólans.
- Ábyrgð á upplýsingamiðlun um innri vef.
- Ræktun sambands við lykilaðila í fjölmiðlum og uppbygging og viðhald tengslanets fyrir fjölmiðlafólk.
- Viðburðastjórnun á vegum Háskólans og fagleg markaðsleg aðstoð við viðburðastjórn grunneininga.
- Birting auglýsinga og samskipti við auglýsingastofur og hönnuði.
- Öflun upplýsinga og hagnýting þeirra út frá markaðs- og ímyndarlegum tilgangi.
- Efling samskipta við einstaka hagsmunahópa skólans, inná við og út á við.
- Mótun hollvinastarfs og innleiðing þess í öllum grunneiningum.
- Aðstoð og ráðgjöf við vinnslu alls markaðs- og kynningarefni fyrir fræðasvið, deildir og námsleiðir ásamt aðstoð við annað sem víkur að ímyndarstarfi innan grunneininga.
- Markaðsstarf í tengslum við sjóði á vegum Háskólans.
- Stjórnun upplýsingaskriftstofu.
- Þjálfun markaðs- og kynningarfólks grunneininga.
- Gerð samninga við samstarfsaðila um markaðs- og ímyndarmál, t.d. sem varðar prentun, auglýsingar og birtingar.
