Hjálmtýr Hafsteinsson

Hjálmtýr Hafsteinsson (f. 13.9.1959), dósent við tölvunarfræðiskor verkfræðideildar Háskóla Íslands.

Hjálmtýr útskrifaðist vorið 1984 frá Háskóla Íslands með BS-gráðu í tölvunarfræði og hlaut doktorsgráðu í tölvunarfræði frá Cornell-háskóla í Bandaríkjunum haustið 1988. Hann var sérfræðingur hjá Raunvísindastofnun Háskóla Íslands þar til hann var ráðinn í stöðu lektors við tölvunarfræðiskor raunvísindadeildar í byrjun árs 1990. Árið 1994 hlaut hann síðan framgang í dósentstöðu.

Helstu rannsóknasvið Hjálmtýs tengjast samhliða algóriþmum og rýrum fylkjum. Hann hefur unnið að því að finna betri aðferðir til að leysa rýr jöfnuhneppi á samhliða tölvum. Einnig hefur hann áhuga á algóriþmum fyrir strengi, gröf og dulmálskóðun.

Hjálmtýr hefur kennt ýmis undirstöðunámskeið í tölvunarfræðiskor auk dæmatímakennslu í stærðfræðiskor. Helsta kennsluefni sem hann hefur fjallað um er tölvuarkitektúr, stærðfræðimynstur, gagnaskipan, algóriþmar, formleg mál, reiknanleiki og tölvugrafík.

Hjálmtýr nýtir hefðbundnar kennsluaðferðir (töflu og krít) og nýjustu kennslutækni (upplýsingamiðlun á heimasíðum og spjallrás) jöfnum höndum. Hann vandar mjög til kennslunnar og hefur fullt vald á því sem hann kennir hvort sem um ræðir hefðbundna tölvunarfræði eða nýjustu tækni. Hann er einkar laginn við að vekja áhuga nemenda á því sem hann kennir. Undanfarin ár hefur hann til dæmis gengist fyrir keppni meðal nemenda. Hún felst í því að skrifa hraðvirkasta 8086-forritið sem leysir tiltekið verkefni. Hjálmtýr hefur náð frábærum árangri við tölvunarfræðiskor.