Helgi Valdimarsson (f. 16. 9. 1936), prófessor við læknadeild
Helgi Valdimarsson lauk embættisprófi frá læknadeild Háskóla Íslands árið 1964. Hann lagði stund á sérnám í lyflæknisfræði og ónæmisfræði við Royal Postgraduate Medical School í London árið 1968 og í Stokkhólmi 1970 og hlaut sérfræðileyfi í ónæmisfræði árið 1975. Helgi var Wellcome styrkþegi og lektor í lyflækningum og ónæmisfræði við skóla sinn í Bretlandi 1971-1975 og tók við stöðu sérfræðings og dósents við St. Mary's sjúkrahúsið í London árið 1975 og gegndi henni til ársins 1981 þegar hann varð fyrsti prófessorinn í ónæmisfræði við Háskóla Íslands og jafnframt yfirlæknir á ónæmisfræðideild Landspítala-háskólasjúkrahúss.
Ónæmisfræðin er fremur ung fræðigrein sem hefur verið í örum vexti frá síðari helmingi 20. aldar. Helgi hefur byggt upp kennslu og rannsóknir í fræðigreininni af framúrskarandi dugnaði. Hann hefur ásamt samstarfsfólki sínu í Háskóla Íslands og á Landspítala-háskólasjúkrahúsi byggt upp rannsóknastofu Háskóla Íslands í ónæmisfræði með ómetanlegum stuðningi háskólasjúkrahússins. Rannsóknastofan er nú orðin vel þekkt sem slík á alþjóðavettvangi. Meginviðfangsefni Helga innan ónæmisfræðinnar hafa verið gigtsjúkdómar og sjálfsofnæmissjúkdómar og eftir hann liggja 154 greinar skráðar í alþjóðlegan gagnagrunn um birtar greinar í læknisfræði.
Sem vísindamaður er Helgi hugmyndaríkur og fljótur að henda á lofti nýjungar og hann lætur ekki vantrú annarra aftra sér frá að fylgja þeim eftir. Fyrir u.þ.b. 20 árum setti Helgi fram hugmyndir um meingerð og tilurð psoriasis fyrir tilstilli T-eitilfrumna í húð og nokkru síðar hóf hann að rannsaka hugsanlegan þátt streptokokkasýkinga í hálsi í tilurð psoriasis. Helgi hefur laðað til sín marga afburða meistara- og doktorsnemendur og með því unnið ötullega að framgangi ónæmisfræðinnar á Íslandi. Hann var með þeim fyrstu sem hvöttu til þess að Háskóli Íslands tæki upp rannsóknatengt framhaldsnám, fyrst meistaranám og síðar doktorsnám.
Auk þess sem hér hefur verið getið hefur Helgi gegnt ótal trúnaðarstörfum, bæði á Íslandi og á alþjóðlegum vettvangi.
Háskóli Íslands vill með þessari viðurkenningu þakka Helga Valdimarssyni fyrir lofsvert framlag hans til rannsókna við skólann.
