Hekla Sigmundsdóttir var ráðin í 37% starf lektors í lífeindafræði við námsbraut í geisla- og lífeindafræði við læknadeild frá 1. ágúst 2009.
Hún lauk BS prófi í líffræði frá Háskóla Íslands 1993 og MS-prófi 1996. Hekla lauk síðan doktorsprófi frá læknadeild Háskóla Íslands árið 2004. Doktorsverkefnið var unnið á Rannsóknastofu Háskólans í Ónæmisfræði á Landspítala Háskólasjúkrahúsi. Verkefnið fólst í rannsóknum á hlutverki viðloðunarsameinda í meingerð psoriasis.
Árið 2004 fór Hekla til Stanford Háskóla í Kalifornía og vann sem postdoctoral fellow á rannsóknastofu Eugene Butchers við læknadeild skólans. Árið 2008 fékk Hekla styrk frá Nordforsk og störf á Rannsóknastofu í Blóðmeinafræði á Landspítalanum og vinnur þar af rannsóknum á hlutverki stofnfruma í langvinnu mergfrumu hvítblæði (chronic myeloid leukemia).
Erlendir samstarfsaðilar
Marie Curie Research Institute, Oxted, Englandi
Dept. of Laboratory Medicine, Lund University, Svíþjóð
EMBL-Hamborg
Massachusetts Eye and Ear Infirmary, Harvard Medical School, Boston, Bandaríkjunum
Laboratory of Developmental Neurogenetics, NINDS, NIH, Bandaríkjunum
Institute of Molecular and Cell Biology (IMCB), Singapore
Líffærafræðisvið læknadeildar Kaupmannahafnarháskóla
Aðsetur Heklu er á Landspítala LSH við Hringbraut sími 534-5081 og netfang: hekla@hi.is.
Háskóli Íslands býður Heklu velkomna til starfa
