Háskólatorg

Háskólatorg - byggingar og hlutverk

Nýjustu byggingar Háskóla Íslands, Háskólatorg, Gimli og Tröð, voru vígðar 1. desember 2007. Byggingarnar eru samtals um 10.000 fermetrar að stærð og með þeim er skólanum sköpuð stórkostleg umgjörð til að sinna sínu mikilvæga hlutverki.

Áhersla er lögð á opið rými - Torg sem nýtist nær allan sólarhringinn. Í Háskólatorgi eru glæsilegir fyrirlestrasalir, kennslustofur, aðstaða til rannsókna, tölvuver, lesrými, skrifstofur kennara, ýmis fjölnota rými auk margvíslegrar þjónustu við stúdenta og starfsfólk, s.s. veitingasalan Háma, Félagsstofnun stúdenta, Stúdentaráð, Alþjóðaskrifstofa, Nemendaskrá og Námsráðgjöf auk Bóksölu stúdenta.

Háskólatorg hýsir á þriðja hundrað starfsmenn og um 1.500 stúdenta á hverjum tíma, auk gesta. Háskólatorg er miklu meira en bara nýtt hús, því það tengir saman nokkrar lykilbyggingar Háskólans og gjörbreytir þannig hlutverki þeirra og notkunarmöguleikum. Háskólartorg er hjarta nýs Háskóla Íslands og þangað eru allir velkomnir.

Hönnuðir Háskólatorgs eru arkitektarnir Ögmundur Skarphéðinsson og Ingimundur Sveinsson en Íslenskir aðalverktakar sáu um framkvæmdina.

Verkefniskynning á Háskólatorgi

Verkefniskynning Háskólatorgs á vef Framkvæmdasýslu ríkisins (mars 2007)

Samkeppni og dómnefndarálit

Samkeppni og dómnefndarálit um Háskólatorg (október 2005)

Teikningar og lýsingar

Teikningar og lýsingar á byggingum Háskólatorgs (september 2006)

Framkvæmdir og gönguleiðir

Framkvæmdir og gönguleiðir (maí 2006)

Fréttir

Fréttir af vef HÍ um Háskólatorg

Bygginganefnd háskólatorgs

Bygginganefnd háskólatorgs

Háskólatorg - næstu skref

Háskólatorg - næstu skref (.pdf, kynningarfundur 27. og 28. febrúar 2006).