Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn (Þjóðarbókhlaðan)
Nemar við Háskóla Íslands fá bókasafnsskírteini í Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni án endurgjalds. Á safninu er hægt að fá bækur að láni, nota námsbókasafn, hlusta á geisladiska og horfa á myndbönd, nálgast íslensk og útlensk tímarit og skoða lokaritgerðir nemenda við HÍ. Á safninu er einnig aðgangur að rafrænum gagnasöfnum í eigu og áskrift safnsins, upplýsingaþjónusta, notendaþjónusta og sala ljósritunarkorta. Á safninu er um 400 sæti við borð auk fjölmargra sæta við tölvur. Safnið rekur nokkur útibú á háskólasvæðinu og mörg þeirra eru sérhæfð á einstökum sviðum.

