Gylfi Zoëga

Gylfi Zoëga (f. 14. 2. 1963), prófessor við viðskipta- og hagfræðideild.

Gylfi Zoëga lauk cand. oecon. prófi frá Háskóla Íslands árið 1987 og hélt að því búnu til náms í Columbia-háskóla í Bandaríkjunum. Þar lauk hann meistaraprófi í hagfræði árið 1989, M.Phil prófi 1991 og doktorsprófi árið 1993. Að námi loknu lagði Gylfi stund á rannsóknir og háskólakennslu erlendis. Hann var ráðinn prófessor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands árið 2002 og kennir þar bæði í grunn- og framhaldsnámi, einkum þjóðhagfræði og vinnumarkaðshagfræði. Gylfi er skorarformaður í hagfræðiskor og varadeildarforseti við viðskipta- og hagfræðildeild. Auk þess gegnir hann stöðu gestaprófessors við Birkbeck College, University of London þar sem hann starfaði um árabil áður en hann hóf störf við Háskóla Íslands.

Gylfi hefur yfirburðaþekkingu á sínu sviði og hefur einstakt lag á að miðla fræðunum til nemenda sinna. Hann er yfirvegaður og áhugasamur kennari og sérstaklega skipulagður og skýr í framsetningu. Hann hefur næma tilfinningu fyrir stöðu nemenda sinna og tekur einlægt tillit til þeirra. Þannig eflir hann traust og kveikir fræðilegan áhuga nemenda sem finna að hann ber hag þeirra fyrir brjósti. Kennsla hans er blandin kímni og hann tengir viðfangsefnin oft við hversdagslegan veruleika með lifandi og skemmtilegum hætti. Hann virkjar nemendur í tímum með vel völdum spurningum og tekst þannig að gera námsefnið athyglisvert, lifandi og skemmtilegt.

Auk þess að vera framúrskarandi kennari er Gylfi mikilvirkur vísindamaður á ýmsum sviðum þjóðhagfræði. Þrátt fyrir tiltölulega skamman feril er hann tvímælalaust kominn í hóp fremstu vinnumarkaðshagfræðinga í heimum og í fararbroddi evrópskra hagfræðinga. Hann hefur um árabil verið í rannsóknasamstarfi við Edmund S. Phelps sem hlaut nóbelsverðlaun í hagfræði árið 2006. Þá hefur hann gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í tengslum við rannsóknir sínar og vísindastörf.

Háskóli Íslands vill með þessari viðurkenningu þakka Gylfa Zoëga fyrir lofsvert framlag hans til kennslu við skólann.