Gústav K. Gústavsson var ráðinn tæknimaður við Kennslumiðstöð frá 15. mars 2011.
Starfið felur í sér aðstoð við upptökur, tæknilega umsýslu ásamt eftirvinnslu á fyrirlestrum og aðstoð við kennara í kennslustofum.
Gústav er rafeindavirkjameistari og tölvu- og kerfisfræðingur og hefur einnig starfað við kennslu í mörg ár. Hann starfaði um árabil hjá sjónvarpsstöðvum þar sem hann sá um tæknibúnað var einnig útsendingarstjóri hjá RÚV og Stöð 2.
Kennslumiðstöð er til húsa í Íþróttahúsi Háskólans og hefur Gústav netfangið gustav@hi.is og símia 587- 8754.
Háskóli Íslands býður Gústav velkominn til starfa.
