Gunnar Guðmundsson var ráðinn í 37% starf dósents í líflyfjafræði (pharmacology) á fræðasviði lyfja- og eiturefnafræði við læknadeild HÍ frá 1. apríl 2011.
Gunnar lauk Cand. med. et chir. frá Læknadeild Háskóla Íslands 25. júní 1988 og doktosnámi Dr. med. frá Læknadeild Háskóla Íslands 30. september 2000.
Gunnar hefur langan starfsferil að baki sem lyflæknir, lungna- og gjörgæslulæknir. Gunnar hefur mikla kennslureynslu og hefur starfað sem klínískur prófessor við Háskóla Íslands frá árinu 2009.
Gunnar hefur aðsetur við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi og netfang: ggudmund@hi.is og sími 543-6879.
Háskóli Íslands býður Gunnar velkominn til starfa.
