Guðrún Helga Agnarsdóttir (f. 15. 8. 1948), verkefnisstjóri á skrifstofum verkfræði- og raunvísindadeilda
Guðrún Helga Agnarsdóttir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1969 og B.A.-prófi í félagsvísindum frá Háskóla Íslands 1993. Haustið 1994 réðst hún til starfa á sameiginlegri skrifstofu verkfræði- og raunvísindadeilda og hefur starfað þar síðan.
Guðrún er hamhleypa til verka. Hún gengur jafnt að öllum störfum og lýkur þeim ævinlega þannig að hvorki þarf að endurtaka né endurgera. Hún er á heimavelli í flestum verkefnum hjá verkfræði- og raunvísindadeildum, stórum sem smáum. Hún gjörþekkir króka og kima Háskólans og miðlar kennurum og stúdentum skilmerkilega af þekkingu sinni, á ýmsum tungumálum. Stúdenta og kennara umgengst hún af móðurlegri umhyggju og strangleika. Alltaf fús að liðsinna þeim en vandar um við þá sem þess þurfa. Hún fylgist vel með stúdentum og ekki síst þeim sem standa höllum fæti, til dæmis vegna sjúkdóma eða annarra erfiðleika. Ekki skirrist hún við að hringja heim til þeirra sem hún veit að hafa misst móðinn og tala í þá kjark og eru mörg dæmi um stúdenta sem Guðrúnu hefur tekist að drífa í próf. Guðrún hefur mikinn metnað fyrir hönd sinna deilda og Háskólans í heild. Hún hefur vakandi auga með kerfum og verkferlum og er óþreytandi að koma á framfæri ábendingum um hvar mætti bæta eða hagræða. Öll framganga Guðrúnar í starfi einkennist af hreinskiptni, hjartanleika, góðum hug og hressileika í fasi.
Sé starfsmaður heiðraður fyrir störf sín hlýtur það að vera fyrir að gera meira og betur en að sinna skyldu sinni. Guðrún Helga Agnarsdóttir er sannarlega vel að slíkum heiðri komin.
Háskóli Íslands vill með þessari viðurkenningu þakka Guðrúnu Helgu Agnarsdóttur fyrir lofsvert framlag hennar til góðra starfshátta, hvatningar og stuðnings við nemendur skólans.
