Guðmundur Þorgeirsson (f. 14.3.1946), prófessor við læknadeild
Guðmundur lauk cand med et chir prófi við læknadeild Háskóla Íslands árið 1973. Hann stundaði framhaldsnám við Case Western Reserve University, Graduate School, í Ohio á árunum 1975-1978 og lauk þaðan doktorsprófi (Ph.D.) 1978. Guðmundur lauk bandarísku sérfræðiprófi í lyflækningum 1980 og í hjartasjúkdómum 1993.
Guðmundur varð prófessor í klínískri lyfjafræði við læknadeild árið 1998, en hann hafði áður gegnt starfi lektors frá 1987-1990 og dósents 1990-1998, einnig við læknadeild. Hann hefur jafnframt starfað sem sérfræðingur í lyflækningum og hjartasjúkdómum við lyflækningadeild Landspítalans frá 1982 og einnig sem yfirlæknir bráðamóttökudeildar og göngudeildar Landspítalans frá 1988.
Guðmundur er mjög virkur vísindamaður og vinnur jafnt að klínískum rannsóknum á hjarta- og æðasjúkdómum og grunnrannsóknum á starfsemi æðaþelsfrumna. Guðmundur hefur leiðbeint fjölda nemenda í rannsóknanámi. Hann hefur byggt upp öflugt rannsóknasamstarf við sérfræðinga innan lands og utan, m.a. hjá Hjartavernd, en hann hefur verið formaður Rannsóknastjórnar Hjartaverndar frá 1988. Guðmundur hefur gegn mikilvægum trúnaðarstörfum í þágu íslensks vísindasamfélags.
Rannsóknir Guðmundar spanna vítt svið. Þær beinast að faraldsfræði kransæðasjúkdóma, áhættuþáttum eins og reykingum, blóðfitu og járnbúskap, sjúkdómgreiningum og forspárgildi áhættuþátta og afdrifum sjúklinga með kransæðasjúkdóma. Þá hefur Guðmundur unnið að viðamiklum rannsóknum á blóðfitulækkandi lyfjum og meðferð við kransæðasjúkdómum og æðakölkun.
Guðmundur hefur einnig unnið að grunnrannsóknum á starfsemi æðaþelsfrumna, einkum þeim boðkerfum sem virkjast innan frumnanna við örvun, hvernig þær bregðast við áreiti til losunar boðefna sem hafa víðtæk áhrif á æðakerfið, svo og áhrifum lyfja á þessi ferli. Truflun á starfsemi æðaþelsins tengist fjölmörgum sjúkdómum, s.s. æðakölkun, æðastíflum og háþrýstingi, og beinast rannsóknir Guðmundar að því að auka skilning á starfrænum og sjúklegum breytingum æðaþelsins og áhrifum lyfja á þær.
Guðmundur hefur verið mjög afkastamikill í rannsóknum sínum og birti á sl. 5 árum 18 ritrýndar greinar í erlendum tímaritum og 7 ritrýndar greinar á innlendum vettvangi, auk fjölmargra útdrátta.
Guðmundur er afburða vísindamaður með yfirgripsmikla þekkingu á grunnvísindum og mikilvirtur sérfræðingur í lyflækninum og hjartasjúkdómum. Rannsóknir hans hafa ótvírætt fræðilegt og hagnýtt gildi. Þær auka skiling á innanfrumuboðkerfum, starfsemi æðaþels, og meingerð hjarta- og æðasjúkdóma. Þær bæta meðferð, efla forvarnir og stuðla að bættri heilsu.
