Guðbjörg Andrea Jónsdóttir var ráðin forstöðumaður Félagsvísindastofnunar frá 1. ágúst 2010.
Guðbjörg Andrea lauk PhD í félagssálfræði frá London School of Economics árið 2004:Context Effects in Social Surveys: A Study of Question Order Effects. MSc. próf í félagslegri sálarfræði frá London School of Economics í júlí 1986 og BA prófi lauk hún í sálarfræði frá Háskóla Íslands 1984. Í námi lagði hún áherslu á að sérhæfa sig í aðferðafræði og tölfræði og hafa lokaritgerðir hennar fjallað um tölfræði og gagnasöfnunaraðferðir sem notaðar eru í félagsvísindum.
Guðbjörg Andrea starfaði sem sérfræðingur hjá Félagsvísindastofnun Hí á árunum 1991-1996 og var þá jafnframt stundakennari í Tölfræði við HÍ. Á tímabilinu 1996-2004 var hún forstöðumaður þróunarsviðs á Fræðslumiðstöð Reykjavíkur en frá 2005 var hún rannsóknarstjóri hjá Capacent Gallup. Guðbjörg Andrea hefur stýrt fjölmörgum rannsóknarverkefnum á sviði launa‐, jafnréttis‐, skóla‐ og menntamála, um viðhorf, lífsgildi, stjórnmálaskoðanir og kosningahegðun, traust og áhrif efnahagsþrenginga á aðstæður og líðan Íslendinga o.fl. Um árabil hefur hún jafnframt haft yfirumsjón með könnunum á viðhorfum Íslendinga til Evrópusambandsins og nú framkvæmd svokallaðra Eurobarometer kannana á Íslandi.
Guðbjörg Andrea er með aðsetur í húsnæði Félagsvísindastofnunar í Gimli, með netfangið gudbjorg@hi.is, sími: 525-4163.
Háskóli Íslands býður Guðbjörgu Andreu velkomna til starfa.
