GRE® - Graduate Record Examinations® - General Test / Subject Tests
Háskóli Íslands er viðurkenndur af ETS®(Educational Testing Service) sem prófstaður fyrir almenn GRE®-próf (GRE® General Test) og námsgreinamiðuð próf (GRE® Subject Tests). Um er að ræða skrifleg próf (Paper Based Test) og fara þau fram í húsnæði Háskólans u.þ.b. tvisvar á ári.
Skólaárið 2012-2013 eru almenn GRE-próf fyrirhuguð lau. 20. október 2012 og lau. 9. febrúar 2013. Námsgreinapróf er fyrirhugað lau. 13. okt. 2012. Skráning í prófin fer fram í gegnum vefsetur GRE-prófa hjá ETS.
Skráningarfrestur rennur út u.þ.b. 5 vikum fyrir settan prófdag, en próftökum er bent á að skrá sig tímanlega.
Bent skal á að á prófstað þurfa próftakar að framvísa gildum skilríkjum (vegabréfi eða ökuskírteini). Þeir þurfa einnig að hafa með sér GRE Admission Ticket.
Nánari upplýsingar um GRE-próf og skráningu í þau má fá á vefsetri ETS.
