Gísli Einarsson var ráðinn í 37% starf lekors í endurhæfingarfræði á fræðasviði endurhæfingarfræði við læknadeild Heilbrigðisvísindasviðs frá 1. júlí 2009. Gísli lauk doktorsprófi frá læknadeild Háskólans í Gautaborg 1990, kandídatsprófi 1976 og Med. Cand prófi frá sama skóla 1972.
Gísli gegnir starfi yfirlæknis á endurhæfingardeild Landspítala Háskólasjúkrahúss og hefur frá 2005. Áður var hann forstöðumaður Skrifstofu kennslu, vísinda og þróunar á LSH frá árinu 2000. Gísli var yfirlæknir á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði 1989-1991. Gísli hefur verið í starfi lektors við læknadeild Háskólans allt frá 1989 og fram til 2008.
Aðsetur Gísla er á Grensásdeild LSH sími 543-1000 og netfang gisliein@hi.is.
Háskóli Íslands býður Gísla velkominn til starfa að nýju.
