Morgunfundir með fyrrverandi starfsmönnum Háskóla Íslands
Starfsmannasvið stendur fyrir morgunfundum fyrir starfsfólk Háskóla Íslands sem hefur hætt störfum vegna aldurs eða annarra ástæðna. Er þetta „opið hús" fyrsta miðvikudag hvers mánaðar frá kl. 10-12 þar sem fólki gefst tækifæri til að hittast og spjalla yfir kaffi og meðlæti og hlusta á erindi frá góðum gesti. Fundarstaður er fyrirlestrarsalur Neskirkju nema annað sé tekið fram.
Þarna gefst einnig tækifæri fyrir núverandi starfsmenn Háskólans að hitta fyrrum starfsfélaga. Umsjón með morgunfundunum er í höndum Eddu Magnúsdóttur fyrrum framkvæmdastjóra starfsmannasviðs H.Í. og verkefnastjóra á starfsmannasviði H.Í.
Afsláttur
Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands veitir fyrrum starfsfólki Háskólans þ.e. þeim sem tilheyra s.k. Skólabæjarhópi, 20% afslátt af menningar- og tungumálanámskeiðum. Við skráningu á námskeið þarf að taka það fram.
Vinsamlegast skráið þátttöku á einstaka fundi í síma 525-4000. Allar nánari upplýsingar veitir starfsmannasvið í síma 525-5220
Dagskrá starfsárið 2011 - 2012
| Haust 2011 | Dagskrá birt með fyrirvar um breytingar | Staðsetning |
| 14. september | ,,Háskólinn í 100 ár - brot úr sögu". Erindi og söguganga um sýningu á Háskólatorgi í fylgd prófessora í Sagnfræði- og heimspekideild þeirra Guðmundar Hálfdánarsonar og Eggerts Þórs Bernharðssonar | HT-300 Háksólatorgi, 3. hæð |
| 12. október |
| Neskirkja, fundarsalur |
| 9. nóvember | Jón Torfi Jónasson deildarforseti Menntavísindasviðs | Neskirkja, fundarsalur |
| 14. desember | Jólafundur - Dr. Sigurður Árni Þórðarson prestur flytur jólaerindi og býður til kirkju. Heitt kakó og smákökur | Neskirkja |
| Vor 2012 | Dagskrá birt með fyrirvara um breytingar | Staðsetning |
| 11. janúar | Ársæll Jónsson lyf- og öldrunarlæknir Erindi: FORVARNIR VIÐ HEILABILUN | Neskirkja, fundarsalur |
| 08. febrúar | Sveinn Einarsson leikstjóri Erindi: SAGA GUÐMUNDAR KAMBAN | Neskirkja, fundarsalur |
| 14. mars | Auður A. Ólafsdóttir lektor í listfræði, safnstjóri Listasafns HáskólaÍslands og rithöfundur ræðir um Listasafnið í Vatnsmýrinni og greinir frá ritstörfum sínum. | Neskirkja, fundarsalur |
| 11. apríl | Hanna Ragnarsdóttir dósent í fjölmenningarfræðum Erindi: FJÖLMENNING | Neskirkja, fundarsalur |
| 09. maí | Vorferð - Borgarfjörður | Rútuferð |
