Fyrirkomulag

Fyrirkomulag

Nokkur atriði sem gott er að hafa í huga

Fjarnám krefst mikillar samhæfingar verkefna og skipulags. Sé nám stundað með vinnu er skipulagning enn mikilvægari en ella. Mikilvægt er að námið sé stundað í sátt við fjölskyldu, vini og vinnuveitendur.

Markmið 

Nauðsynlegt er að nemendur setji sér markmið í upphafi náms og geri tímaáætlun. Nemendur ættu jafnframt að fara reglulega yfir það í huganum hvernig miði í náminu, hvað hafi verið vel gert og hvað megi bæta. Vinnan í fjarnáminu er mikil einstaklingsvinna en þarf þó ekki að vera einmanaleg ef nemendur notfæra sér þá samskiptamöguleika sem fyrir hendi eru.

Samvinna nemenda 

Nemendur þurfa oft á tíðum að taka þátt í hópa- og paravinnu sem er háð samskiptum við samnemendur á netinu. Slík samskipti eru tímafrekari en þau samskipti sem eiga sér stað í kennslustofu. Mikilvægt er að nemendur taki virkan þátt í því námssamfélagi sem þeir tilheyra sem fjarnemar. Gott netsamband er nauðsynlegt til að geta tekið þátt í umræðum, nálgast efni og komið því frá sér á auðveldan hátt. Ekki ber að einblína á flókinn tækjabúnað.

Ef nemendur lenda í tæknilegum vandræðum þá er starfsfólk Háskólans tilbúið til aðstoðar.

Notendaþjónusta Reiknistofnunar HÍ

Leiðbeiningarvefur Kennslumiðstöðvar HÍ

Fjarnámssíða HÍ - nemendur