Háskóli Íslands hefur til umráða nokkrar íbúðir á Eggertsgötu og Suðurgötu ætlaðar fræðimönnum. Einungis er hægt að leigja íbúð þeim sem hefur tengsl við Háskólann. Gestaíbúðir er hægt að panta á netfanginu gestaibudir@hi.is. Íbúðirnar eru almennt ekki leigðar samfellt lengur en í einn mánuð og óheimilt er að leigja fleiri en þrjár íbúðir sama leigutaka. Íbúðirnar eru hvorki þrifnar né skipt á sængurfatnaði eða handklæðum meðan þær eru í útleigu.
| Gestaíbúð | m2 | lýsing | lágmarksv. 3 sólarhr. | hver sólarhr. umfram 3 |
| Egg 001 | 58 | stofa og svefnh. | 17.000 kr. | 3.500 kr. |
| Egg 002 | 50 | stofa og svefnh. | 17.000 kr. | 3.500 kr. |
| Egg 003 | 50 | stofa og svefnh. | 17.000 kr. | 3.500 kr. |
| Egg 307 | 40 | stofa og svefnh. | 17.000 kr. | 3.500 kr. |
| Egg 308 | 40 | stofa og svefnh. | 17.000 kr. | 3.500 kr. |
| Sud 207 | 30 | stúdíóíbúð | 13.000 kr. | 2.500 kr. |
