Forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs

Háskóli Íslands leitar að öflugum stjórnanda og leiðtoga fyrir verkfræði- og náttúruvísindasvið sem er eitt af fimm fræðasviðum skólans.

Forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs starfar í umboði rektors. Hann er æðsti yfirmaður og akademískur leiðtogi fræðasviðsins og stjórnar daglegri starfsemi þess. Með forseta fræðasviðs starfar öflugt teymi stjórnenda og sérfræðinga.

Forseti fræðasviðs ber m.a. ábyrgð á:

  •     útfærslu stefnu Háskóla Íslands á vettvangi fræðasviðs,
  •     fjármálum og rekstri fræðasviðs og stofnana sem undir það heyra,
  •     gæðum kennslu, rannsókna og þjónustu,
  •     starfsmannamálum,
  •     öflugri liðsheild og faglegu samstarfi,
  •     tengslum við innlenda og erlenda samstarfsaðila,
  •     stjórnsýslu og stoðþjónustu fræðasviðsins.


Umsækjendur skulu hafa:

  •     akademískt hæfi sem og þekkingu og reynslu á háskóla- og/eða rannsóknaumhverfi,
  •     leiðtogahæfileika,
  •     metnaðarfulla og skýra framtíðarsýn,
  •     ríka samskiptahæfni,
  •     víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun.


Ráðið verður í starfið til fimm ára, æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst. Heimilt er að framlengja ráðningartímann um allt að fimm ár til viðbótar án auglýsingar í samræmi við reglur sem háskólaráð setur. Forseti fræðasviðs er ráðinn af rektor að fenginni umsögn nefndar um ráðninguna.

Umsóknarfrestur er framlengdur til 19. mars nk.

Umsóknir skulu berast í rafrænu formi á netfangið: starfsumsoknir@hi.is. Umsóknargögn sem ekki eru send í rafrænu formi skulu berast til starfsmannasviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík. Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verði tekin.
Nánari upplýsingar um umsóknargögn, starfið og ráðningarferlið er að finna á slóðinni: http://www.hi.is/node/19918

Frekari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir, sviðsstjóri starfsmannasviðs, Háskóla Íslands, netfang gjg@hi.is, sími 525-4355.