Mikilvægt er að flokka úrgang til endurvinnslu. Að neðan fara upplýsingar um staði á háskólasvæðinu þar sem tekið er við margs konar úrgangi eins og plasti, skrifstofupappír og flöskum.
Fernur
Fernum er skilað í þar til gerðar tunnur sem staðsettar eru á 3 hæð í VR II
Athugið að skola þarf fernurnar áður en þeim er hent. Einnig þarf að fjarlægja allt plast (t.d. rör eða tappa) og henda í tunnu fyrir plast.
Plast
Plasti er skilað í þar til gerðar tunnur sem staðsettar eru á 3 hæð í VR II
Athugið að skola þarf plastið ef það er skítugt áður en því er hent. Einnig þarf að fjarlægja allt sem ekki er plast utan af umbúðunum.
Flöskur og dósir
Flöskum og dósum er skilað í þar til gerðar tunnur sem staðsettar eru á göngunum í VR II
Með því að flokka rétt styrkir þú nemendafélög innan FV (félag verkfræðinema).
Skrifstofupappír
Hvítum skrifstofupappír er safnað til endurvinnslu í bláu ruslatunnum staðsettum í flestum tölvuverum Háskóla Íslands (eða á göngum skólans). Þessar tunnur eru einungis fyrir hágæða pappír, hægt er að endurvinna dagblöð á Háskólatorgi.
Ábendingar:
- Nemendafélögum í öðrum deildum Háskólans er bent á að fara í umhverfisátak í sínum húsum.
- Úrvinnslusjóður hefur látið gera einkar góð myndbönd um flokkun á áli og pappa.
