Fjarpróf

Fjarpróf

English version

Stúdentar HÍ geta sótt um að þreyta próf sín á öðrum stað en innan skólans, t.d. vegna dvalar erlendis. Sömuleiðis getur stúdent sem skráður er í nám við annan háskóla sótt um að þreyta próf sín í umsjá HÍ, í samráði við skóla sinn. Í báðum tilvikum er greitt fyrir þjónustuna og þarf umsókn að berast með góðum fyrirvara.

Athugið að ef um er að ræða skipulegt fjarnám við HÍ, tengt ákveðinni símenntunarmiðstöð, þarf ekki að sækja sérstaklega um fjarpróf.

Allar nánari upplýsingar um kostnað og hvað umsækjandi þarf að gera er að finna á rafrænum umsóknareyðublöðum sem vísað er á hér að neðan.

Umsókn um að próf við HÍ sé haldið annars staðar

Umsókn um að próf frá öðrum skóla sé haldið við HÍ