Hægt er að fara sem skiptistúdent frá Háskóla Íslands til skóla í Eyjaálfu annaðhvort gegnum AEN, samstarfsnet margra háskóla, eða í gegnum beint samstarf.
Fresturinn til þess sækja um skóla í Eyjaálfu fyrir skólaárið 2013-2014 er 15. janúar klukkan 16:00.
Ráðlegt er að lesa bækling um skiptinám og allar leiðbeiningar vel og vandlega, áður en sótt er um skiptinám. Fylgigögn þurfa oftast að vera stimpluð/staðfest frumrit. Ef nemendur eru í vafa, skulu þeir ekki hika við að hafa samband við Skrifstofu alþjóðasamskipta.
AEN (Australian European Network)
AEN er samstarfsnet á milli evrópskra háskóla í Utrecht samstarfsnetinu og sjö háskóla í Ástralíu. Hægt er að sækja um að fara í skiptinám eitt misseri eða tvö í einhvern af þessum sjö skólum. Það þarf að sækja um tvo skóla til vara. Skólagjöld eru niðurfelld við gestaskólann sem útvegar húsnæði. Stúdentar skulu hafa lokið einu ári af námi sínu við HÍ áður en farið er utan, greiða skráningargjaldið og skulu taka TOEFL-prófið. Sjá hérna TOEFL dagsetningar framundan. Haustmisseri í Ástralíu hefst í lok febrúar og vormisseri í lok júlí. Hásumar í Ástralíu er í nóv.-des.
- Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu AEN
í AEN eru eftirfarandi ástralskir háskólar (Australian AEN partner universities):
- Edith Cowan University í Western Australia
- Deakin University í Victoria
- Griffith University í Queensland
- Macquarie University, Sydney, New South Wales
- University of Tasmania, Tasmania *
- University of Western Sydney, Sydney New South Wales
- University of Wollongong, New South Wales
* Þeir sem sækja um University of Tasmania verða að vera búnir með eitt ár þegar þeir sækja um skólann. Þeir sem eru aðeins búnir með hálft ár geta sótt um vormisseri eingöngu (semester 1).
Umsóknarferli:
Nemendur byrja á að velja gestaskóla og tvo til vara og fylla síðan út rafræna umsókn til Skrifstofu alþjóðasamskipta. Þegar búið er að senda umsóknina rafrænt á að prenta hana út og skrifa undir. Námsáætlun er gerð á umsóknina og forsvarsmaður viðkomandi fags þarf að samþykkkja námsáætlunina með undirskrift sinni.
Aðrir samstarfsskólar í Ástralíu (other partner universities in Australia):
- Flinders University of South Australia í Adelaide
- Griffith University í Queensland
- University of New South Wales í Sidney
Samstarfsskólar á Nýja Sjálandi (partner universities in New Zealand):
- University of Auckland í Auckland
- University of Otago, Dunedin
Skrifstofa alþjóðasamskipta, 3. hæð Háskólatorgi, sími 525 4311, ask@hi.is, opið: 10-12 og 12:30-16
