Eva Dagmar Steinsson (f. 25. 7. 1954), deildarstjóri launadeildar Háskóla Íslands
Eva Dagmar Steinsson hóf störf við Háskóla Íslands sem fulltrúi á starfsmannasviði árið 1994. Eva Dagmar hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum á starfsmannasviði og launadeild og frá byrjun árs 2003 hefur hún gegnt starfi deildarstjóra launadeildar.
Áður en Eva Dagmar hóf störf hjá Háskóla Íslands starfaði hún hjá Fjársýslu ríkisins og hefur í starfi sínu hjá Háskólanum miðlað og nýtt mikið af þeirri reynslu sem hún öðlaðist þar.
Í starfi sínu vinnur Eva með viðkvæmar trúnaðarupplýsingar og leysir hún það af hendi bæði faglega og af mikilli trúmennsku. Hún stýrir launakeyrslu allra starfsmanna við Háskóla Íslands, en á síðasta ári voru greidd laun til um 3500 einstaklinga við skólann. Þá hefur Eva unnið ötullega að innleiðingu launakerfis í Oracle undanfarin ár.
Árangur Evu Dagmar í starfi við Háskólann má rekja til færni hennar og þekkingar auk þeirra mannkosta sem hún er gædd og því óskoraða trausti sem hún nýtur meðal samstarfsmanna. Hún er sérlega samviskusöm, ávallt reiðubúin til að leggja sig alla fram um að ljúka verkefnum á tilskildum tíma og afar bóngóð við úrlausn þeirra flóknu verkefna sem upp koma í dagsins önn. Þá hefur Eva Dagmar vaxið með hverju verkefni sem hún hefur tekið sér fyrir hendur. Undir hennar stjórn hefur launadeild Háskólans eflst og er starfsandi og vinnulag hjá deildinni til fyrirmyndar. Eva Dagmar hefur leitast við að afla sér viðbótarmenntunar sem nýtist við stjórn og eflingu deildarinnar og lauk hún diplómanámi í verkefnastjórnun- og leiðtogaþjálfun við Endurmenntun Háskóla Íslands í vor með góðum árangri.
Háskóli Íslands vill með þessari viðurkenningu þakka Evu Dagmar fyrir lofsvert framlag hennar til góðra starfshátta og starfsmannamála við skólann.
