Umsóknarfrestur um grunn- og framhaldsnám fyrir erlenda stúdenta (aðra en skiptinema) er til 1. febrúar 2012. (skólaárið 2012-2013). Stúdentar frá hinum Norðurlöndunum geta þó sótt um grunnnám til 5. júní (þó aðeins til 1. febrúar ef sótt er um íslensku sem annað mál).
Nánari upplýsingar um hvað hafa þarf í huga varðandi nám á Íslandi er að finna á vef Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins. Tengill á rafrænt umsóknareyðublað er neðar á þessari síðu á umsóknartíma.
Inntökuskilyrði
Stúdentar sem hefja nám í Háskóla Íslands skulu hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu prófi frá erlendum skóla.
Tungumál
Kennsla í Háskóla Íslands fer að mestu fram á íslensku. Í mörgum deildum eru þó sum námskeið kennd á ensku. Nánari upplýsingar um námsleiðir og námskeið eru í kennsluskrá.
Skrásetningargjald
Árlegt skrásetningargjald í Háskóla Íslands er nú kr. 60.000.
Umsóknir
(Umsókn um nám - rafrænt umsóknareyðublað)
Skiptistúdentar
Athugið: Ofangreint eyðublað er ekki fyrir þá sem sækja um skiptinám. Umsóknum um skiptinám við Háskóla Íslands þarf að skila fyrir 1. maí.
Frumskilyrði er að umsækjandi hafi lokið minnst 60 ECTS einingum við sinn heimaskóla og að í gildi sé samstarfssamningur á milli þess skóla og Háskólans. Nánari upplýsingar eru á upplýsingasíðu fyrir erlenda skiptinema.
