Erasmus skiptinám – Erasmus starfsnám - Erasmus tungumálnámskeið -Upplýsingasíða
Umsóknarfrestur er 1. mars.
Skiptinám á vegum Erasmus gerir háskólastúdentum kleift að stunda hluta af námi sínu við háskóla í öðru Evrópulandi í 3-12 mánuði. Nemendur sækja um Erasmus styrk, sem samanstendur af ferðastyrk, að hámarki 650 evrur, og dvalarstyrk, að hámarki 300 evrur á mánuði. Þegar umsókn um skiptinám er fyllt út þá er sjálfkrafa verið að sækja um styrkinn.
Um er að ræða tvenns konar styrki. Í Erasmus skiptinámi við einhvern af samstarfsskólum HÍ eru tekin námskeið sem síðan eru metin til eininga við heimkomu. Hinn möguleikinn er Erasmus starfsnám. Þá er verið að vinna að ákveðnu verkefni eða hjá stofnun við eitthvað sem tengist námi viðkomandi.
Erasmus skiptinám
Hægt er að taka Erasmus skiptinám við einhvern af samstarfsskólum HÍ. Þá eru tekin námskeið við gestaskólann sem síðan eru metin til eininga við heimkomu.
Ljúka þarf a.m.k.einu ári í HÍ eða 60 ECTS-einingum í viðkomandi fagi áður en farið er út sem Erasmus stúdent. Fyrsta árs nemar geta sótt um að því tilskildu að þeir ljúki 60 ECTS áður en farið er utan. Að öðru leyti er nám á öllum stigum háskólanáms styrkt, þ.m.t. doktorsnám, að því gefnu að deild stúdentsins við HÍ samþykki skiptinámið.
Erasmus skiptinemar greiða ekki skólagjöld í gestaskóla. Skiptinemar eiga að skrá sig í námskeið við HÍ í árlegri skráningu, sem fer yfirleitt fram í lok mars, og greiða skráningargjaldið. Áður en haldið er utan í erlenda gestaskólann á að skrá sig úr námskeiðunum.
Erasmus starfsnám
Hægt er að sækja um Erasmus styrk í starfsnám til Evrópu í 3 til 12 mánuði. Stúdentar sem eru í viðurkenndu háskólanámi sem er eitt ár eða minna geta sótt um styttri starfsnámsdvöl, eða að lágmarki 3 vikur. Stúdentar á öllum námsstigum mega sækja um. Stúdentar sem hafa áður farið í Erasmus skiptinám mega sækja um styrki til starfsnáms. Skilyrði er að starfsnámið tengist námi umsækjanda og verði metið sem hluti af námi hans við HÍ.
Meðan á starfsnámi stendur er verið að vinna að ákveðnu verkefni eða hjá stofnun við eitthvað sem tengist námi viðkomandi. Starfsnámið gæti verið hjá opinberri stofnun (t.d. sjúkrahúsi eða alþjóðastofnun), hjá einkafyrirtæki eða hugsanlega hjá háskóla eða rannsóknarstofnun. Starfsnám gæti til dæmis hentað doktorsnema sem vinnur hluta af sínu verkefni erlendis.
Hægt er að nýta ýmsar vefsíður til að leita að starfsnámsmöguleikum, t.d:
Europlacement
Placement UK
Global Placement
Einnig heldur Alþjóðaskrifstofa upplýsingum um möguleika á starfsnámi til haga.
Erasmus tungumálanámskeið
Boðið er upp á sérstök Erasmus tungumálanámskeið (Erasmus Intensive Language Course, EILC) áður en kennsla hefst í löndum með “minna töluð tungumál” (ekki ensku, þýsku, frönsku og spænsku). Umsóknum um tungumálanámskeið skal skila til Alþjóðaskrifstofu fyrir 1. maí.
Upplýsingasíða um Erasmus
Á síðunni erasm.us er að finna ýmsar upplýsingar um Erasmus.
Alþjóðaskrifstofa Háskóla Íslands, 3. hæð Háskólatorgi, sími 525 4311, ask@hi.is, opið: 10-12 og 12:30-16
