Elísabet L. Þorsteinsdóttir (f. 7.12.1954), starfsmatsstjóri við Háskóla Íslands
Elísabet Þorsteinsdóttir hóf störf við Háskóla Íslands 1. október 1990 sem verkefnisstjóri á starfsmannasviði og varð deildarstjóri frá 1. janúar 1991. Elísabet hefur starfað við fjölbreytt verkefni á starfsmannasviði allt frá upphafi og má þar m.a. nefna gerð handbókar fyrir starfsmenn, verkefni er tengjast vinnumati kennara, launamálum og þróun tölvumála við deildina. Frá 1. febrúar 2003 var Elísabet ráðin sem starfsmatsstjóri til tveggja ára. Fólst verkefnið í því að meta starfsfólk skólans eftir sérstöku matskerfi sem sérstaklega var búið til fyrir störf við stjórnsýslu og þjónustu í Háskóla Íslands og tengdum stofnunum, sem ekki falla undir stigamatskerfi kennara og sérfræðinga. Frá upphafi lágu tvö markmið til grundvallar matinu. Annars vegar var lögð áhersla á að koma á hlutlægum og gagnsæjum mælikvörðum við ákvörðun launa í stjórnsýslu- og þjóunstustörfum, hliðstætt því sem gert er við ákvörðun launa akademískra starfsmanna. Matskerfið skyldi tryggja samræmda og réttláta launaröðun og þess sérstaklega gætt að starfsfólki væri ekki mismunað í launum vegna kynferðis eða annarra ómálefnalegra þátta. Hins vegar var lögð áhersla á að laun í Háskóla Íslands og hjá tengdum stofnunum stæðust samanburð við laun viðmiðunarhópa. Bæði þessi markmið eru liður í því að framfylgja starfsmanna- og launastefnu Háskólans og jafnréttisáætlun hans. Það er skemmst frá því að segja að Elísabet hefur leyst þetta verkefni af hendi með miklum sóma. Hefur henni tekist að vinna mjög vandasamt verk, en gerð sambærilegs starfsmats við háskóla á Norðurlöndum hefur tekið mun lengri tíma, kostnaður farið úr böndum og erfitt reynst að fylgja því eftir.
Árangur Elísabetar í starfi við Háskólann má ekki aðeins rekja til færni hennar og þekkingar, heldur ekki síður þeirra mannkosta sem hún er gædd, enda nýtur hún óskoraðs trausts samstarfsmanna sinna.
Háskóli Íslands vill með þessari viðurkenningu þakka Elísabet L. Þorsteinsdóttur fyrir lofsvert framlag hennar til starfsmannamála við skólann.
