Einar S. Björnsson hefur verið ráðinn í starf prófessors í meltingasjúkdómafræði á fræðasviði lyflækninga við læknadeild HÍ sem er samhliða starfi yfirlæknis á lyflækningasviði á LSH.
Einar lauk kandídatsprófi í læknisfræði frá Læknadeild HÍ 1989 og stundaði nám í almennum lyflækningum, meltingar- og lifrarlækningum við Sahlgrenska Háskólasjúkrahúsið í Gautaborg. Hann lauk doktorsprófi frá Gautaborgarháskóla 1994. 1997-2008 var Einar sérfræðingur við meltingardeild Sahlgrenska og varð dósent við Gautaborgarháskóla 1999 og prófessor í meltingar- og lifrarlækningum við sama skóla 2006. Frá ágúst 2008 til júlí 2009 var Einar gestaprófessor við Mayo Clinic í Rochester í Minne-sota.
Rannsóknir Einars sl. áratug hafa aðallega verið á sviði lifrarrannsókna og fyrst og fremst beinst að lifrarskaða af völdum lyfja, rannsóknum á ýmsum fylgikvillum skorpulifur og gallvegssjúkdómnum primary sclerosing cholangitis.
Einar mun hafa aðsetur á Landspítala Háskólasjúkrahúsi sími: 543-1000 og netfang: einarsb@hi.is.
Háskóli Íslands býður Einar velkominn til starfa.
